Strákarnir lutu í parket gegn KR

Ragnar Ágústsson á fullri ferð. Pétur fyglist með.  MYND: DAVÍÐ ELDUR / KARFAN.IS
Ragnar Ágústsson á fullri ferð. Pétur fyglist með. MYND: DAVÍÐ ELDUR / KARFAN.IS

Það var bikarhelgi í körfunni um helgina og eitt lið frá Tindastóli hafði tryggt sér réttinn til að spila til úrslita. Það var unglingaflokkur karla sem fékk það verkefni að takast á við Vesturbæjarstrákana úr KR og því miður fóru okkar kappar flatt, töpuðu 73-111 í leik sem þeir vilja sennilega hugsa sem minnst um.

Rétt eins og í úrslitum meistararflokksklúbbanna þá voru úrslitaleikirnir í yngri flokkunum leiknir í Laugardalshöllinni. Sannarlega spennandi að leika á þjóðarleikvangnum og menn virtust tilbúnir í slaginn í byrjun leiks því Stólarnir leiddu framan af fyrsta leikhluta. Í báðum liðum voru strákar sem hafa farið mikinn með meistaraflokksliðum beggja liða; Pétur Birgis, Viðar Ágústs og Hannes Ingi hjá Stólunum og þeir Þórir G og Arnór Hermanns í liði KR. Lið KR var einu stigi yfir eftir fyrsta leikhluta, 20-21, en í öðrum leikhluta kom í ljós að breiddin var meiri hjá Vesturbæingum og Sigvaldi Eggertsson raðaði niður körfum fyrir hlé. Staðan 35-51 í leikhléi.

Stólarnir fóru síðan ágætlega af stað í síðari hálfleik og tvær 3ja stiga körfur frá Pétri minnkuðu muninn í tíu stig. Þá gerðu KR-ingar tíu stig í röð og eftir það misstu strákarnir móðinn og gerðu sig seka um mýmörg mistök á meðan flest skot rötuðu niður hjá liði KR. Það voru því Vesturbæingarnir sem fögnuðu enn einum titlinum og ber að óska þeim til hamingju með hann. Engu að síður frábær árangur hjá Tindastólsstrákunum að tryggja sér sæti í úrslitunum en sannarlega hefði verið ljúft að ná bikarnum heim á Krók.

Stigahæstir í liði Tindastóls voru Pétur með 27 stig og níu fráköst og Viðar með 25 stig og sömuleiðis níu fráköst. Hannes skilaði niður níu stigum. 

Tölfræði af vef KKÍ >

Fleiri fréttir