Sumarnámskeið á Hólum
Sumarið 2009 verður boðið upp á námskeið í Reiðmennsku og Sögu hestsins við Hólaskóla - Háskólann á Hólum. Námskeiðið er opið þeim sem hafa lokið stúdentsprófi og hafa grunnþekkingu í meðhöndlun hesta og reiðmennsku. Áfangarnir eru hluti af sameiginlegri námsbraut til BS prófs í Hestafræði við Hólaskóla - Háskólann á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Námskeiðið er öllum opið sem hafa stúdentspróf og grunnþekkingu í meðhöndlun hesta og reiðmennsku.
Á námskeiðinu eru kennd grunnatriði í reiðmennsku, bóklega og verklega og rakin þróunarsaga hestsins og saga reiðlistarinnar.
Sjá nánar á vef Hólaskóla