Sunnudagsljóðið
Sunnudagsljóðið er eftir Ingunni Snædal og heitir „ósk“.
ósk
kannski kemur sumarið
mjakast eins og rymjandi
græn dráttarvél inn dalinn
rekandi á undan sér
feitar hvítar skýjakindur í ull
eftir sólgulum vegi
rákótt postulínsfjöllin fella tár
niður hlíðarnar af einskærri gleði
kannski kemur sólin í gulum vagni
eins og dama nei hofróða
með rauðlakkaðar neglur
við lifnum við