Tæp ein og hálf milljón safnaðist í gær

580 hamborgar og 34 lítrar af mæjónesi runnu út og einhver slatti af frönskum. Mynd: Hard Wok Cafe.
580 hamborgar og 34 lítrar af mæjónesi runnu út og einhver slatti af frönskum. Mynd: Hard Wok Cafe.

Um það bil 580 hamborgar og 34 lítrar af mæjónesi runnu út af Hard Wok Cafe á Sauðárkróki í gær og söfnuðust 1.464.780 krónur fyrir fjölskyldu Völu Mistar, sem dvalið hefur í Svíþjóð vegna veikinda stúlkunnar. Í gær var fór Vala Mist í hjartaþræðingu, þar sem ósæðaboginn var stækkaður um helming.

Árni Björnsson eigandi Hard Wok Cafe var ánægður eftir daginn og á fésbókarsíðu staðarins þakkar hann öllum þeim sem komu að hamborgarasölunni fyrir skemmtilegan og fjörugan dag en margir lögðu sín lóð á vogarskálarnar svo allt gengi vel fyrir sig.

Á Styrktarsíðu stúlku Valsdóttur segir að Vala Mist hafi rúllað hjartaþræðingunni upp sem hún fór í í gær. Þar var ósæðaboginn stækkaður um helming og eru læknarnir mjög ánægðir með hana segja foreldrarnir.

„Næstu dagar fara í að jafna sig eftir þessa aðgerð og svo verður skoðað með dren í höfuðið. Sendum góðar kveðjur frá Svíþjóð, Lilja og Valur,“ segir á síðunni en þar er hægt að fylgjast með gangi mála.

Fleiri fréttir