Tæpar 66 milljónir í styrki

Uppbyggingarsjóður og Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Norðurlands vestra veita styrki til atvinnuþróunar, nýsköpunar og menningarverkefna 
Fimmtudaginn 16. febrúar sl. voru veittir styrkir úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra við athöfn í veitingahúsinu Sjávarborg á Hvammstanga.  
Alls bárust 107 umsóknir þar sem óskað var eftir rúmum 135 milljónum króna í styrki. Styrkir voru veittir til 64 aðila, alls að upphæð tæpar 56,6 millj. kr.
Við sama tækifæri voru einnig veittir styrkir úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Norðurlands vestra. Alls bárust sjö umsóknir þar sem óskað var eftir tæpum 17 milljónum króna í styrki. Styrkir voru veittir til þriggja aðila, samtals að upphæð 9,4 millj. kr.

Eftirtaldir aðilar hlutu styrki úr Uppbyggingarsjóði: 
4.000.000 kr.   Garðyrkjustöðin Laugarmýri (f.h. óstofnaðs félags): Samrækt á Laugarmýri
3.800.000 kr.    Iceprotein: Þorskbein sem fæðubót
3.700.000 kr.   Magnús Barðdal (f.h. óstofnaðs félags): Heimili lundans
2.700.000 kr.   Selasetur Íslands: Tvö verkefni a) Stofn- og rekstrarstyrkur b) Undirbúningur að gerð heimildarmyndar um selveiðar á Vatnsnesi
2.550.000 kr.   Sögusetur íslenska hestsins: Tvö verkefni a) Stofn- og rekstrarstyrkur b) Rafræn miðlun
2.300.000 kr.   Samgönguminjasafn í Stóragerði: Stofn- og rekstrarstyrkur
2.300.000 kr.   Menningarfélagið Spákonuarfur: Stofn- og rekstrarstyrkur
2.300.000 kr.   Nes listamiðstöð ehf: Þrjú verkefni: a) Stofn- og rekstrarstyrkur b) 10 ára afmælishátíð c) Skapandi leið fyrir hagnýta yfirfærslu
2.000.000 kr.   Byggðasaga Skagafjarðar/Sögufélag Skagfirðinga: Byggðasaga Skagafjarðar
1.500.000 kr.   Náttúrusmiðjan: Heilsubein
1.500.000 kr.   Pure Natura: Markaðssetning nýrrar vörulínu 
1.500.000 kr.   Sonja Mannhardt: Vanadís
1.350.000 kr.   Heimilisiðnaðarsafnið: Þrjú verkefni: a) Stofn- og rekstrarstyrkur b) Sumarsýning c) Stofutónleikar
1.320.000 kr.   Ferðamálafélag V-Hún.: Þrjú verkefni: a) Starfsnemaverkefni upplýsingamiðstöðva b) Dómur – handritsgerð c) Náðarstundarkort
1.050.000 kr.   Lafleur web/ehf.: Tvö verkefni a) Íslensk sjávarböð b) Ferðahandbók fyrir forvitna
1.000.000 kr.   Sjávarlíftæknifyrirtækið Biopol: Kortlagning þaraflóru í austanverðum Húnaflóa
1.000.000 kr.  Textílsetur Íslands ses: Stofn- og rekstrarstyrkur
1.000.000 kr.  Kakalaskáli ehf.: Stofn- og rekstrarstyrkur
    900.000 kr.  Vilko: Lífræn náttúruafurð
    900.000 kr.  Erla Björk Helgadóttir: Viðskiptaáætlun Víðimels  
    850.000 kr.  Lýtingsstaðir: Hljóðleiðsögn um torfhúsin á Lýtingsstöðum
    850.000 kr.  Greta Clough (Handbendi brúðuleikhús): Sumarsýning - Búkolla
    800.000 kr.  nList: The Iceview: Tímarit um bókmenntir og listir
    800.000 kr.   Vinir Kvennaskólans á Blönduósi: Saga Kvennaskólans á Blönduósi 1879-1978
    700.000 kr.  Leikfélag Sauðárkróks: Tvö verkefni: a) Beint í æð  b) Lína langsokkur
    700.000 kr.   Eldur í Húnaþingi: Eldur í Húnaþingi 2017
    700.000 kr.  Viðburðarríkt ehf.: Drangey Music Festival – þar sem vegurinn endar
    550.000 kr.  Nemendafélag FNV: Tvö verkefni: a) Söngkeppni b) Söngleikur
    500.000 kr.   Bændasjóður Bólstaðarhlíðarhrepps: Hlíðhreppingar – ábúendatal og æviskrár
    500.000 kr.  Félagið á Sturlungaslóð: Viðburðir og framkvæmdir á Sturlungaslóð
    500.000 kr.  Búminjasafnið Lindabæ ehf: Stofn- og rekstrarstyrkur
    500.000 kr.  Verslunarminjasafn Hvammstanga: Stofn- og rekstrarstyrkur
    450.000 kr.   Fornverkaskólinn: Fornverkaskólinn 10 ára, námskeið og erlent samstarf
    450.000 kr.   Skúli Einarsson: Jólatónleikar Jólahúna 2017
    450.000 kr.  Helga Rós Indriðadóttir: Helg eru jól
    450.000 kr.   Sönglög á Sæluviku: Hátíð í bæ – aðventutónleikar í Miðgarði og á Hofsósi
    400.000 kr.  Ungmennasamband Austur-Húnvetninga: Húnavökurit 2017
    400.000 kr.  Skotta ehf.: Vegur 75 um Tröllaskarð   
    400.000 kr.  Listasafn Skagfirðinga: „Fyrsta umhverfing“ – samsýning listamanna á Sauðárkróki
    400.000 kr.  Skagafjarðarhraðlestin: Lummudagar í Skagafirði
    400.000 kr.  Kristín I. Lárusdóttir og Eysteinn P. Lárusson: Húnavaka á Blönduósi
    400.000 kr.  Jónsmessunefnd: Jónsmessuhátíð á Hofsósi
    350.000 kr.   Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga: Húni, 38. árgangur 2017
    330.000 kr.  Fjölnota: Fjölnota - markaðssetning
    300.000 kr.  Kristján Bjarni Halldórsson: Tvö verkefni: Hljóðræn ritlist b) Rafræn ritlist
    300.000 kr.  Sveitarfélagið Skagaströnd: Upplýsingaskilti um gömul/horfin hús á Skagaströnd
    300.000 kr.  Karlakórinn Heimir: Starfsárið 2017
    300.000 kr.  Karlakórinn Lóuþrælar: Vor- og jólatónleikar 2017
    300.000 kr.  Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps: Bó og meira til
    300.000 kr.  Kvennakórinn Sóldís: Tónleikahald
    300.000 kr.  Skagfirski kammerkórinn: Lifað í ljóði – á venjulegum dögum og hátíðisdögum
    300.000 kr.  Héraðsskjalasafn Skagfirðinga: Skagfirsk fræði í nútíð og fortíð
    300.000 kr.  Leikfélag Hofsóss: Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund S. Backman
    300.000 kr.  Frásaga áhugamannafélag: „Það gefur á bátinn“
    280.000  kr. Lambagras: Gönguleiðsögn með kynningu á sögu og menningu á Hólum
    250.000 kr.  Jón Sigurðsson: Reynistaðarbræður
    250.000 kr.  Arnar Kjartansson: VSOT tónleikar 2017
    250.000 kr.  Þjóðleikur á Norðurlandi vestra: Leiklistarhátíð
    200.000 kr.  Gunnar Rögnvaldsson: Vinalegi vitinn – útgáfa barnabókar
    200.000 kr.  Sönghópur Félags eldri borgara í Skagafirði: Söngstarf 2017
    200.000 kr.  Menningarfélag Húnaþings vestra: Söngvarakeppni Húnaþings vestra
    200.000 kr.  Alexandra Litaker: Líkamstjáning umvafin náttúru
    150.000 kr.  Sigvaldi Helgi Gunnarsson: Hraun um Hraun til Hrauna
    100.000 kr.  Grundarhópurinn: Listaflóð á Vígaslóð

Eftirtaldir aðilar hlutu styrki úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði:
  5.200.000 kr.  Greta Clough: Handbendi brúðuleikhús
  2.200.000 kr.  Skrautmen: Skrautmen – vöruþróun og markaðsstyrkur
  2.000.000 kr.  Jóhanna og Jónssynir: Markaðssetning á hálsbindum úr fiskroði

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir