Tekist á um vorið
feykir.is
Skagafjörður, Ljósmyndavefur
07.04.2009
kl. 13.24
Nú er sá tími þegar vetur og sumar takast á um hvor á að hafa yfirhöndina með vorið. Annan daginn er hríð hinn sól og blíða. Vængjaðir vorboðar eru komnir til landsins, krókusar hafa opinberað fegurð sína og fólk bíður eftir því með bjartsýni að vorið komi með björtu veðri.
Blaðamaður Feykis tók nokkrar stemningsmyndir í morgun.
Fleiri fréttir
-
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í Drangey
Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að í dag var björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki kölluð út vegna einstaklings sem hafði slasast í Drangey á Skagafirði. Uppgangan í Drangey er brött og erfið og ekki hlaupið að því að flytja liggjandi sjúkling þá leið og var því brugðið á það ráð að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar.Meira -
Heiður að taka við rekstri Hlíðarkaups
Það er nú sennilega á flestra vitorði, eins og á við um mörg leyndarmálin, að það eru komnir nýir eigendur að Hlíðarkaup. Þessi ástsæla verslun í Hlíðarhverfinu á Króknum hefur verið rekin af Ásgeiri Einarssyni og fjölskyldu frá upphafi en búðin var fyrst opnuð 1991. Orðsporið hefur verið framúrskarandi og var Ásgeir til að mynda kjörinn Maður ársins á Norðurlandi vestra á síðasta ári. Nýir eigendur Hlíðarkaups eru Óli Björn Pétursson, Hekla Eir Bergsdóttir, Pétur Ingi Björnsson og Regína Jóna Gunnarsdóttir.Meira -
Í tilefni af 100 ára afmæli Glaumbæjarkirkju | Sigurður Haraldsson á Grófargili skrifar
Mín fyrstu kynni af Glaumbæjarkirkju hófust þegar ég var 4 ára - eða árið 1940. Þá fór fram jarðarför Sigurðar Jónssonar í Brautarholti sem ég heiti eftir. Sigurður var oddviti Seyluhrepps í 25 ár og faðir minn var tekinn í fóstur til þeirra Brautarholtshjóna, Sigurðar og Jóhönnu Steinsdóttur frá Stóru-Gröf. Faðir minn var eins ár þegar hann var tekinn í fóstur til þeirra hjóna, en faðir föður míns, Stefán Bjarnason á Halldórsstöðum deyr frá 10 börnum sem voru á ýmsum aldri, 1902.Meira -
Mýs og menn í Fljótum
Sláttur er hafinn í Fljótum en það voru bændurnir á Brúnastöðum sem riðu á vaðið þann 27. júní. „Það þykir snemmt hér í Fljótum,“ segir í færslu bóndans á Molastöðum á Sveitin okkar – Fljótin á Facebook.Meira -
Aðsóknarmet á HipFest 2026
Um nýliðna helgi fór brúðulistahátíðin HIP Fest 2026 fram á Hvammstanga en það er Handbendi brúðuleikhús sem hefur veg og vanda að hátíðinni sem er magnað menningarframtak á landsbyggðinni. Þetta var í fimmta sinn sem hátíðin er haldin og óhætt að fullyrða að hún verði glæsilegri með hverju skiptinu. Samkvæmt heimildum Feykis var slegið aðsóknarmet á hátíðinni sem vonandi heldur áfram að vaxa og dafna.Meira
