Þriðjudagstungl annað hvort góð eða vond

Þriðjudaginn 7.  mars 2017  komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar.  Hófst hann kl. 14:00 og stóð yfir í 25 mínútur. Fundarmenn voru alls 14 talsins. Klúbbfélagar fóru yfir veðurspá febrúarmánaðar og var almenn ánægja með hvernig sú spá gekk eftir og segja má að veðurbreytingar sem ráð var fyrir gert hafi staðist nánast upp á klukkutíma. 

Góu tungl kviknaði 26. feb. í suðri og er það ráðandi fyrir veðurfar í þessum mánuði. Síðan kviknar nýtt tungl þriðjudaginn 28. í norðri kl. 02:57. Samkvæmt kenningum Ríkarðs í Bakkagerði, sem var veðurglöggur maður, þá eru þriðjudagstungl annað hvort góð eða vond.

Allt bendir til þess að fyrrihluti marsmánaðar verði svipaður og verið hefur. Bjart og stillt veður enda gott veður á öskudegi, sem á sér átján bræður. Seinnipart mánaðar má búast við veðrabreytingum. Rifjuð var upp vísa Sigurðar Baldvinssonar frá árinu 1887, sem er svona: 

Spámaður er hann, það vil ég vona,
veðrinu gerir hann þannig skil.
Annað hvort verður það áfram svona,
ellegar þá hann breytir til.

 

Veðurvísa  febrúar og mars: 

Febrúar á fannir
þá læðist geislinn lágt.
Í mars þá blæs oft biturt,
en birtir smátt og smátt

Fleiri fréttir