Þrjú systkin í Skólahreysti

Systkinin hraustu, Inga Sara, Jón Örn og Ester María. Mynd: Bjarki Már Árnason.
Systkinin hraustu, Inga Sara, Jón Örn og Ester María. Mynd: Bjarki Már Árnason.

Ýmsir höfðu ríkari ástæðu en aðrir til að fagna eftir glæsilegan árangur skagfirskra skóla í Skólahreysti í gær, í það minnsta höfðu þau hjónin Kristín Bjarnadóttir og Eiríkur Frímann Arnarson á Hofsósi þrefalda ástæðu til, þar sem þrír fjórðu liðsins var skipað börnum þeirra.

Dóttirin Inga Sara sem er í 9.bekk gerði sér lítið fyrir og gerði 50 armbeygjur sem gulltryggði henni fyrsta sætið í þeirri grein og einnig náði hún þriðja sæti í hreystigreipinni. Tvíburarnir Ester María og Jón Örn í 10. bekk skeiðuðu svo í gegnum hraðaþrautina af miklu öryggi og náðu þar fjórða sætinu, aðeins tveimur sekúndum á eftir liðinu sem lenti í þriðja sæti. Fjórði maður liðsins, Hólmar Björn Birgisson stóð sig einnig með mikilli prýði og lenti í þriðja sæti í báðum sínum greinum, upphífingum og dýfum. Samanlagt skilaði þessi árangur krökkunum í annað sætið með 48 stig á eftir Varmahlíðarskóla sem lenti í fyrsta sætinu með 49 stig.

Sannarlega þreföld ánægja á þessu heimili.

Fleiri fréttir