Tindastóll áfram í átta liða úrslit

logo_tindastollBreiðablik og Tindastóll áttust við í Smáranum í Kópavogi í kvöld í Poweradebikarnum. Tindastóll hafði nokkra yfirburði í leiknum og sigruðu með fimmtán stiga mun 68-83.

 

Með sigrinum tryggðu Stólarnir sér sæti í 8 liða úrslitum og eiga leik við KR-inga á laugardag á útivelli. Svavar Birgisson var stigahæstur Stólanna og skoraði 25 stig  og frændi hans Friðrik Hreinsson skoraði 16 stig. Í liði heimamanna var Hjalti Friðriksson stigahæstur með 11 stig.

Leikir í átta liða úrslitum Powerade-bikarsins

 

Laugardagur

KR-Tindastóll Kl. 18.00

 

Sunnudagur

Keflavík-Njarðvík Kl. 19.15

Snæfell-Stjarnan Kl. 19.15

Grindavík-ÍR Kl. 19.15

Fleiri fréttir