Tindastóll með keppendur á Vormóti JSÍ í júdó

Þrír iðkendur Júdódeildar Tindastóls voru skráðir til leiks á Vormót JSÍ sem haldið var sl. laugardag hjá Júdófélagi Reykjavíkur. Sveinn Kristinn Jóhannsson varð þriðji í sínum flokki en aðrir komust ekki á pall.
Ásamt Sveini Kristni voru Viktor Darri Magnússon og Tsvetan Tsvetanov Michevski skráðir til leiks og lenti Viktor Darri í fimmta sæti í sínum flokki. Á heimasíðu Tindastóls segir að Tsvetans hafi verið eini keppandinn sem skráður var í hans flokk og hafði því enga andstæðinga til að etja kappi við að þessu sinni og keppti því ekki á mótinu.
Mótið var svo gert upp með því að fara í keilu og borða gómsæta pítsu áður en þeyst var til baka í fjörðinn fagra.