Tindastólsmenn mæta Hamri í Hveragerði
Tindastólsmenn leika sinn þriðja leik í 2.deildinni í kvöld þegar þeir fara til Hveragerðis og mæta þar liði heimamanna.
Þetta veður klárlega erfiður leikur og því er gott að hugsa vel til okkar drengja. Leikurinn hefst kl. 20:00 og hvetur Feykir.is Skagfirðinga á höfuðborgarsvæðinu að skella sér í bíltúr í Hveragerði. Fá sér ís í Eden og skella sér því næst á leik.
Áfram Tindastóll.