Tískustúlkan : Margrét Alda

Tískustúlkan 2008 verður krýnd 11. október næstkomandi. Feykir kynnti stelpurnar í sumar og nú næstu  daga mun Feykir.is kynna stelpurnar 10 eina á dag. Það er Hulda Jónsdóttir á Sauðárkróki sem er eigandi og hugmyndasmiður keppninnar.

Margrét Alda Magnúsdóttir er 18 ára stúlka sem nýflutt er á Krókinn. Móðir hennar er kölluð Gógó og vinnur á Furukoti og fósturpabbi hennar heitir Pétur og er varðstjóri hjá Lögreglunni á Sauðárkróki.

Þau fluttu nýlega frá Flateyri  en Margrét var í skóla á Akranesi og kom hingað í byrjun apríl. Á Akranesi nam hún félagsfræði í Fjölbrautaskóla Vesturlands.

        

Fleiri fréttir