Tryggði sér sæti í Ólympíuliði Íslands í líffræði
Mikael Snær Gíslason, nemandi við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, tryggði sér sæti í Ólympíuliði Íslands í líffræði, en Ólympíukeppnin fer fram í Englandi í sumar. Hann hafnaði í 3. sæti í úrslitakeppninni sem fram fór um liðna helgi.
Á fésbókarsíðu FNV segir að Ólympíuliðið sé skipað fjórum keppendum af þeim 15 sem komust í undanúrslit. Alls tóku 180 nemendur þátt í undankeppninni sem fram fór 25. janúar sl. en þar hafnaði Mikael í 4.-5. sæti.
Mikael Snær býr á Sauðárkróki, sonur Gísla Sigurðssonar og Fanneyjar Ísfoldar Karlsdóttur.