Tveggja turna tal norður af Hrauni
feykir.is
Skagafjörður, Lokað efni
31.08.2026
kl. 19.31
Borgarísjakinn norður af Hrauni. Myndin er tekin með talsverðum aðdrætti og á myndunum hér að neðan má betur átta sig á fjarlægðinni frá landi. MYNDIR: GUNNAR RÖGNVALDSSON
Það hefur mátt sjá nokkrar myndir á samfélagsmiðlum undanfarna daga af borgarísjaka úti fyrir Skagafirði. Feyki bárust rétt í þessu myndir af þessum tígulega tveggja turna jaka þar sem hann dólar um 1-2 kílómetra beint norður af vitanum á Hrauni á Skaga.
