Tveimur skipverjum bjargað af lekum báti

Sjá má á Marine Traffic hvert Þytur SK stefndi í gær.
Sjá má á Marine Traffic hvert Þytur SK stefndi í gær.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst um áttaleytið í gærkvöldi neyðarkall frá bát sem var að veiðum á utanverðum Skagafirði. Leki var kominn að bátnum og útlit fyrir að skipverjarnir tveir þyrftu að yfirgefa hann. Öllum nærstöddum skipum var beint að bátnum ásamt því að þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Skagaströnd og Siglufirði héldu á vettvang. Þá var Herkúlesflugvél frá bandaríska flughernum send til leitar.

Klukkan 21.18 kom færeyska loðnuskipið Finnur Fríði að björgunarbátnum og fáeinum mínútum síðar hafði mönnunum tveimur verið bjargað um borð. Á Facebooksíðu Landhelgisgæslunnar  segir að laust fyrir hálfníu í gærkvöldi hafi borist merki frá neyðarsendi bátsins í gegnum gervitungl og skömmu síðar sást neyðarblys frá skipverjum. Stundarfjórðungi síðar gátu skipverjarnir hringt í stjórnstöð og látið vita að þeir væru heilir á húfi og komnir í björgunarbát. Herkúlesvélin var komin á vettvang tíu mínútum síðar og sveimaði yfir svæðinu uns mönnum hafði verið bjargað.

Klukkan 21.18 kom færeyska loðnuskipið Finnur Fríði að björgunarbátnum og fáeinum mínútum síðar hafði mönnunum tveimur verið bjargað um borð. Á sama tíma kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn flutti hún mennina í land. Hér sannaðist hve mikilvægt er að sjómenn hlusti á neyðarrásina 16 en snögg viðbrögð þeirra sem voru á svæðinu réðu úrslitum um hve giftusamlega tókst til. Hér má sjá feril Blængs að Þyt í gærkvöldi.

Landhelgisgæslan vill þakka áhöfnum þeirra skipa sem þátt tóku í björguninni fyrir skjót og fagleg viðbrögð. Hér sannaðist hve mikilvægt er að sjómenn hlusti a neyðarrásina 16 en snögg viðbrögð þeirra sem voru á svæðinu réðu úrslitum um hve giftusamlega tókst til. Auk þeirra sem þegar hafa verið nefndir tóku togararnir Sólbakur og Blængur og björgunarskipin Sigurvin og Húnabjörg þátt í aðgerðunum, auk þess sem olíuskipið Laugarnes hélt á vettvang, segir á Fésbókarsíðu Gæslunnar.

Fleiri fréttir