Ungir Skagfirðingar setja nýtt reikningakerfi á markað

Mynd f.v. Guðmundur og Þorsteinn, tveir af eigendum Konto.is. Mynd: Konto.is
Mynd f.v. Guðmundur og Þorsteinn, tveir af eigendum Konto.is. Mynd: Konto.is

Tveir Skagfirðingar hafa stofnað sprotafyrirtæki í rafrænni reikningagerð þar sem nýjungar á borð við hraðgreiðslur, kröfur í netbanka, tenging við bókhaldskerfi og sala á netinu eru alls ráðandi. Það eru þeir Guðmundur Kári Kárason og Þorsteinn Hjálmar Gestsson sem standa á bakvið vefsíðuna konto.is, sem hér um ræðir. Meðeigandi að fyrirtækinu er Kristján Gunnarsson einn stofnenda vefstofunnar Kosmos & Kaos.

Að sögn þeirra Guðmundar og Þorsteins, einfaldar Konto minni aðilum að selja vörur og þjónustu á netinu, án eigin vefverslunar eða vefsíðu, og hvetur til skilvísra greiðslna, meðal annars með því að einfalda rafræna reikningagerð og innleiða sjálfvirka kröfustofnun í netbanka og hraðgreiðslur. Markmið Konto.is er að gera viðmótið svo einfalt að notandi kerfisins geti sent löglega rafræna reikninga, hvar og hvenær sem er.

“Það hefur aldrei verið auðveldara að senda rafrænan reikning. Í samstafi við bankana höfum við svo einfaldað kröfustofnun í netbanka til muna. Samhliða útgáfu reiknings og sendingu reiknings þá birtist krafa í netbanka greiðanda. Næst ætlum við að einfalda skráningu í bókhaldskerfi og heilla alla bókara og endurskoðendur upp úr skónum.” segir Þorsteinn Gestsson, þróunarstjóri Konto.is. 

Með Konto.is geta aðilar komið frá sér reikningum í fallegu og einföldu viðmóti, sem virkar á öllum tækjum. Hægt verður að senda reikning strax þar sem viðkomandi klárar verk eða afhendir vöru; jafnvel er hægt að senda reikning úr símanum í sófanum heima. Fyrir marga er nægilegt að geta stofnað og sent reikninga með tölvupósti á greiðanda og verður sú þjónusta alltaf ókeypis. Engin þörf er á því lengur að kaupa fyrirfram númeraða reikninga heldur geta rekstraraðilar stórir sem smáir gert sína reikninga í Konto frítt. Einnig er í boði að gera kröfustofnun í viðskiptabanka sjálfvirka. Það eykur líkur á að reikningur sé greiddur á réttum tíma um allt að 50% ef krafa birtist í netbanka greiðanda. 

,,Við höfum verið að vinna í nýjungum í reikningagerð sem við köllum hraðgreiðslur. Þegar reikningur er gefinn út getur þú boðið uppá afslátt ef reikningur er greiddur innan þriggja daga og þannig verðlaunað þá sem greiða snemma í stað þess að refsa bara þeim sem greiða seint og illa. Sumir muna eftir að hafa fengið staðgreiðsluafslátt, nú köllum við hann hraðgreiðsluafslátt!” segir Þorsteinn. 

Konto.is er tengt öllum viðskiptabönkunum og er á lokametrum í tengingum við vinsælustu bókhaldskerfi landsins; DK og NAV. ,,Með þessum hætti geta viðskiptavinir okkar haldið áfram að nýta sér núverandi banka- og bókhaldsþjónustur án þess að skipta um kerfi. Eina sem breytist er viðmót fyrir reikningagerð.” segir Guðmundur Kári Kárason, framkvæmdastjóri Konto. 

Önnur nýjung eru sölusíður, þar sem hægt er að stofna sölusíðu fyrir allar vörur í kerfinu. Nú er hægt að selja á vefnum án þess að vera með heimasíðu, vefverslun eða posa. Hægt er að deila sölusíðum með hverjum sem er; einnig á samfélagsmiðlum. Kaupandi fyllir inn upplýsingar um sig við kaup og við það stofnast krafa í netbanka kaupanda. Þegar hún er greidd fær seljandi skilaboð um kaupin og getur afgreitt pöntunina. ,,Við erum mjög spenntir að sjá hvernig þessi vörusala beint úr reikningakerfinu þróast. Þetta auðveldar markaðssetningu á samfélagsmiðlum og sölu á netinu svo svakalega mikið” segir Guðmundur Kári Kárason, framkvæmdastjóri Konto.

Fleiri fréttir