Vilt þú taka þátt í fjörugri umræðu um betra samfélag?

Fundarherferðin Réttlátur vinnumarkaður – allra hagur hefst í dag í Skagafirði en um er að ræða málþing þar sem rætt verður um stöðuna á vinnumarkaði með tilliti til undirboða og brotastarfsemi á hverju svæði fyrir sig. Þá verður spurningin "hvernig samfélag viljum við vera?" rædd. Fundurinn verður haldinn í Varmahlíð og stendur frá klukkan 13 til 17:00.

Að sögn Þórarins Sverrissonar formanns stéttarfélagsins Öldunnar í Skagafirði er um mikilvæg mál að ræða þar sem oft er dansað á fínni línu um löglega eða ólöglega starfsemi er að ræða í mörgum tilfellum. Tekur hann sem dæmi sjálfboðaliðastörf í ýmsum greinum þ.m.t. ferðaþjónustu og regluverkið í kringum sölu landbúnaðarafurða beint frá bændum.

Þórarinn veltir því upp hvort það sé mögulegt að regluverkið í landinu sé að einhverju leyti hamlandi í möguleikum fyrirtækja og einstaklinga til að ná árangri og þá tilhneigingu mannanna að fara á svig við lögin.

„Það er skylda okkar að verja lífskjör í landinu, stuðla að  jöfnuði og  bæta kjör okkar fólks á sama tíma. Það verður hins vegar ekki gert ef samfélagið og við sjálf förum ekki að leikreglum. Mín ósk er að við getum hér í dag átt hreinskiptið og gott samtal um hlutverk okkar og ábyrgð í samfélaginu, hvað megi betur fara og hvernig við nálgumst það að gera á því bragabót,“ segir Þórarinn sem vonast til að sjá sem flesta sem láta sig málefnin varða, á fundinum í dag.

Á morgun heldur fundaherferðin áfram en þá hefur verið boðað til fundar í Hofi á Akureyri og sá þriðji verður á Húsavík fimmtudaginn 22. mars.

HÉR er hægt að nálgast dagskrá fundarins í Varmahlíð.

Fleiri fréttir