Vinaliðaverkefnið fékk eina milljón króna frá DHL eftir Einvígið á Nesinu
Golfarar komu saman á Seltjarnarnesi í gær en þar fór fram hið árlega góðgerðamót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu – Shoot out, á Nesvellinum. Eftir keppni og verðlaunaafhendingu var Vinaliðaverkefninu, sem Árskóli á Sauðárkróki heldur úti á landsvísu, veitt styrkur upp á eina milljón krónur.
Það var Auður Þórarinsdóttir, frá DHL á Íslandi, sem afhenti Guðjóni Jóhannssyni verkefnisstjóra Vinaliðaliða styrkinn en verkefnið leggur áherslu á að stöðva einelti í skólum.
Guðjón segir aðspurður hvernig það hafi komið til að Vinaliðaverkefnið hafi fengið styrkinn, að hann sé stöðugt að leita að styrktaraðilum. „Í einni betlferðinni í vor kom ég við hjá DHL, að vísu í þeim tilgangi að fá afslátt af flutningi á dóti frá Noregi en verkefnið er norskt að uppruna. Framkvæmdastjórinn þekkti verkefnið vel vegna þriggja dætra hans sem allar höfðu verið Vinaliðar í sínum skólum. Hann tók vel í beiðni mína og sagðist myndi gera eitthvað fyrir okkur næst þegar dót kæmi til landsins. Þremur vikum síðar hringdi hann og tilkynnti mér að þetta verkefni hefði verið valið fyrir Einvígið á Nesinu. Hann hafði þá tilnefnt verkefnið óbeðinn inn í mótanefndina þar.“
Guðjón segist þeim gríðarlega þakklátur en styrkurinn mun nýtast fyrst og fremst til þýðingar og útgáfu á nýju efni sem fylgir verkefninu. „Norðmennirnir eru mjög duglegir að gefa út leikjabækur og við erum töluvert á eftir þeim því við stöndum straum af kostnaði við þýðingar og útgáfu á þeim hér á Íslandi. Það er dýrt og afnotagjald verkefnisins sem skólarnir greiða dugar rétt fyrir rekstri verkefnisins.“
Auk DHL segist Guðjón einnig vilja koma á framfæri þökkum til Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir mjög myndarlegan stuðning síðustu árin sem og Kaupfélagsins sem einnig er stuðningsaðili verkefnisins.
„Að lokum hvet ég fólk að koma fram við aðra eins og það vill að komið sé fram við það. Hvort sem er í beinum samskiptum eða rafrænum, segir Guðjón.
Kristján Þór sigraði einvígið
Um mótið er það að segja að venju samkvæmt léku þeir kylfingar sem boðið var í mótið 9 holu höggleik áður en Einvígið hófst með formlegum hætti. Þar lék best af öllum Björgvin Sigurbergsson sem nú tók þátt í Einvíginu í 20. sinn en hann lék á 34 höggum, eða tveimur höggum undir pari vallarins.
Eftir hádegið hófst svo Einvígið sjálft þar sem einn keppandi dettur út á hverri holu þar til tveir berjast um sigurinn á 9. braut. Á 9. teignum stóðu eftir þeir Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson úr Golfklúbbi Suðurnesja og fór svo að lokum að Kristján Þór sigraði eftir að þeir höfðu báðir fengið par á holuna og svo Einvígi (shoot-out) í lokin.
Sjá nánar HÉR