Yfirlögregluþjóninum á Blönduósi sagt að taka pokann sinn

Kristjáni Þorbjörnssyni, sem starfaði sem yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, var sagt upp störfum í gærmorgun og staða hans lögð niður. Tveir yfirlögregluþjónar voru áður hjá embættinu, Kristján með aðsetur á Blönduósi og Stefán Vagn á Sauðárkróki.

Í samtali við RÚV segir Kristján að uppsögnin hafi komið honum í opna skjöldu og enginn fyrirvari hafi verið á henni. Hann hefur starfað hjá lögreglunni á Blönduósi í rúm 36 ár, en hefur verið yfirlögregluþjónn síðan árið 1991. Hann er 62 ára og á rúm tvö ár eftir í starfi þar til hann fer á eftirlaun, en hann fær greidd biðlaun í ár.

Gunnar Örn Jónsson sem tók við starfi lögreglustjóra hjá embættinu á Norðurlandi vestra 1. apríl segir í samtali við fréttastofu RÚV að þetta sé endurskipulagning á embættinu síðan hann tók við og er niðurlagning stöðunnar hluti af þeirri vinnu. Að öðru leyti getur hann ekki tjáð sig um mál einstakra starfsmanna. 

Fleiri fréttir