Arinbjörn Jóhannsson á Brekkulæk látinn
Arinbjörn Jóhannsson, ferðabóndi á Brekkulæk í Miðfirði, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga 29. október síðastliðinn, 76 ára að aldri. Arinbjörn fæddist 5. mars árið 1950 og ólst upp á Brekkulæk. Foreldrar hans voru Jóhann Frímann Sigvaldason, kennari og bóndi á Brekkulæk, og Sigurlaug Friðriksdóttir húsfreyja.
Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum á Akureyri hélt Arinbjörn til Þýskalands og stundaði nám fyrst í Freiburg en síðan í Köln. Þar lagði hann stund á mannfélagsfræði, auk leikhús-, sjónvarps- og kvikmyndafræði.
Heim kominn 1978 tók hann að bjóða þýskumælandi ferðamönnum upp á hestaferðir á Arnarvatnsheiði þar sem gist var í gangnamannaskálum og silungur veiddur til matar. Fyrstu árin hafði þessi útgerð aðsetur á eyðibýlinu Aðalbóli í Miðfirði. Stofnaði hann ferðaskrifstofuna Ferðir/Erlebnistouren árið 1979 og ásamt fyrri sambýliskonu sinni, Gudrun M.H. Kloes, byggði hann upp fæðingarbæ sinn á Brekkulæk og breytti honum í notalegt gistihús.
Þaðan rak hann í nær hálfa öld öfluga ferðaþjónustu með hestaferðum vítt og breitt um Norður- og Vesturland, með gönguferðum yfir Arnarvatnsheiði, hjólreiðaferðum og náttúruskoðunarferðum um Vesturland og miðhálendið auk hringferða um Ísland. Í samstarfi við Ferðafélag Íslands skipulagði hann söguferðir um héraðið.
Arinbjörn lagði ríka áherslu á að nýta nærumhverfið í Húnaþingi vestra og var frumkvöðull í sinni heimabyggð á sviði ferðaþjónustu. Hann var einn af stofnendum Ferðaþjónustu bænda.
Undanfarin 25 ár var eftirlifandi eiginkona hans, Claudia Hofmann, hans nánasti samstarfsmaður og stýrði gistihúsinu á Brekkulæk. Arinbjörn lætur eftir sig þrjú börn og þrjú barnabörn.
/Texti úr Morgunblaðinu
