Fyrirhugað vindorkuver við sveitarfélagamörk Húnaþings vestra og Dalabyggðar

Kortið sýnir svæði þar sem hluti af einni eða fleiri vindmyllum geta verið sýnilegir. Mynd:Skjáskot af mynd í viðauka við breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Sólheimum.
Kortið sýnir svæði þar sem hluti af einni eða fleiri vindmyllum geta verið sýnilegir. Mynd:Skjáskot af mynd í viðauka við breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar vegna vindorkuvers á Sólheimum.

Sveitarfélagið Dalabyggð hefur óskað eftir umsögn Húnaþings vestra við tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016 vegna vindorkuvers í landi Sólheima í Laxárdal en umrætt land er á mörkum sveitarfélaganna tveggja, Dalabyggðar og Húnaþings vestra.

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Húnaþings vestra þann 7. desember síðastliðinn var samþykkt að óska eftir frekari gögnum til að geta átt faglegt samráð við íbúa Húnaþings vestra og upplýstrar ákvörðunartöku um efnistök umsagnar.

Í frétt á vef Húnaþings vestra segir að í helstu atriðum felist breytingin í því að 400 ha iðnaðarsvæði til vindorkunýtingar er fært inn í aðalskipulag, á svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi.

Iðnaðarsvæðið í landi Sólheima gerir ráð fyrir uppbyggingu á vindorkuveri með allt að 30 vindmyllum til raforkuframleiðslu allt að 150MW. Í greinargerð tillögunnar er áformað að vindmyllur verði 120m upp í miðju hverfils og spaðar í hæstu stöðu í 200m hæð. Hugsanlega þarf að gera ráð fyrir ljósabúnaði efst á myllum, til aðvörunar fyrir flugumferð. Áformað er að selja raforkuna inn á kerfi Landsnets.

Í tillögunni er umhverfisskýrsla þar sem fjallað er um umhverfisþætti, matsspurningar og viðmið, ásamt samanburði valkosta og umfjöllun um mótvægisaðgerðir. Orkuvinnslusvæðið liggur innan svæðis sem Náttúrufræðistofnun gerir tillögu um að vernda, sem mikilvægt svæði fyrir fuglalíf og líffræðilegan fjölbreytnileika, afmarkað sem mikilvægt varpsvæði á alþjóðavísu fyrir himbrima og álft. Þjónustuvegir/-slóðar verða lagðir á svæðinu.

Í greinargerð með breytingaruppdrætti ásamt viðauka með uppdrætti er sýnt svæði mögulegs sýnileika vindorkuvers í landi Sólheima (landnr. 137586 og 137587), við sveitarfélagamörk að Húnaþingi vestra. Kortið sýnir mögulegan sýnileika vindmylla í 200m hæð yfir landi með spaða í hæstu stöðu.

Íbúum Húnaþings vestra gefst kostur á að koma sjónarmiðum og/eða athugasemdum sínum á framfæri til skrifstofu Húnaþings vestra á netfangið skrifstofa@hunathing.is, merkt „Vindorka_Dalabyggð“. Einnig má senda athugasemdir beint til Dalabyggðar á netfangið skipulag@dalir.isFrestur til að skila inn athugasemdum er til 20. janúar 2021.

Aðalskipulagsbreytinguna er að finna á https://dalir.is/wp-content/uploads/2020/11/Breyting-vegna-vindorkuvers-a-Solheimum.pdf

Upptöku af íbúafundi sem haldinn var í Dalabyggð 3. júní s.l. vegna vindorkuversins er að finna á slóðinni https://www.youtube.com/watch?v=7DYLZvQh-YI

Frekari upplýsingar má nálgast á Heimasíðu Dalabyggðar, https://dalir.is/frettir/auglysing-um-breytingu-a-adalskipulagi-dalabyggdar-2004-2016/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir