Nú styttist í sveitastjórnarkosningar mörgum til mikillar gleði en öðrum ekki. Tilvonandi sveitastjórnarfulltrúar fara sjálfsagt að hugsa sér til meiri hreyfings með kynningu á stefnu og málefnum. Ekki þarf að efast um að loforðaflaumurinn verður mikill eins og endranær.
Eitt af því sem hefur heillað mig sem aðfluttur Skagfirðingur er hversu menningin er hér í hávegum höfð. Hér er fjölbreytt úrval menningarviðburða en ekki síður löng og metnaðarfull hefð fyrir varðveislu sagna- og menningararfsins. Það veldur mér því vonbrigðum að fylgjast með hinni neikvæðu umræðu sem spunnist hefur um byggingu fyrirhugaðs Menningarhúss. Húss sem í áratugi hefur staðið til að reisa og hillir nú loks undir að verði að veruleika, með umtalsverðri aðkomu ríkisins.
Á Sauðárkróki er stunduð öflug og lifandi leikhúsmenning þrátt fyrir að aðstaðan til að rækta hana að fullu hefur ekki haldið í við metnaðinn. Það er löngu tímabært að horfast í augu við þá staðreynd að hér á Króknum vantar menningarhús sem getur raunverulega sinnt leiksýningum, tónleikum og ýmsu öðru viðburðahaldi, hvert svo sem það er. Nú styttist í að ráðist verði í byggingu nýs menningarhúss við Safnahúsið á Flæðunum og er það fagnaðarefni.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Edda Borg Stefánsdóttir frá Sauðárkróki er nú búsett á Akureyri. Hún er uppalin á Króknum, fædd 1991. „Ég er dóttir Stebba Gauks, starfar sem töframaður í Loðskinn, kenndur við Gauksstaði á Skaga, og Ollu Dísar, dóttir Gígju og Árna heitinna á Hólmagrund.“ Röddin er aðal hljóðfæri Eddu en einnig spilar hún á píanó og gítar. „Mig langar að læra á kontrabassa og blásturshljóðfæri líka, það er alltaf hægt að bæta við sig!“ segir hún eldhress. Helsta afrekið í tónlistinni segir hún einfaldlega hafa verið drífa sig loksins til að semja og fara í söngnám. Ég tek grunnpróf í Tónlistarskóla Akureyrar núna í apríl. Annars var auðvitað mjög skemmtilegt að fá að vera Tarantúla með Arnari og Helga,“ segir Edda og vísar þar í lagið Tarantúlur með Úlfur Úlfur.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.