Stökkmót Smára 2026 | Öldungamót fyrir konur og karla 30 ára og eldri
Stökkmót Smára 2026 verður haldið laugardaginn 11. apríl stundvíslega kl. 11:15 í íþróttahúsinu í Varmahlíð. Mótið er ætlað öldungum, þ.e. konum og körlum sem eru 30 ára og eldri, og er kjörið tækifæri til að sýna kraft og keppnisskap í góðum félagsanda.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
Engin verðbólga í Húnaþingi vestra
Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra bauð félögum sínum til fjölmennrar grillveislu í gær. Grillað var úti í hádeginu fyrir utan samfélagsmiðstöðina Glaumbæ sem er til húsa á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga. Á boðstólum var gómsætt lambakjöt frá Sláturhúsi SKVH á Hvammstanga ásamt tilheyrandi meðlæti og drykkjum. Verðið á krásunum var ekki verðbólguhvetjandi því þátttakendur greiddu aðeins 1.000 krónur og gátu etið að vild.Meira -
Myndasyrpa frá Höskuldi B. úr Auðkúlurétt
Þessar vikurnar er réttað út um víðan völl ef svo má segja. Fjárréttir verða á átta stöðum dagana 12. til 14. september í Skagafirði og réttað verður í Kleifnarétt í Fljótum í dag. Þá verður réttað á sjö stöðum í Húnavatnssýslum 11.-14. september en réttað er í Sveinsstaðarétt í Austur-Hún í dag og hófust réttarstörf þar reyndar kl. 10 í morgun.Meira -
Fjölskylduhlaupið er í dag!
KS og Vörumiðlun vilja leggja verkefninu Gulur september lið. Verkefnið er vitundavakning um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir. Á alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga, fimmtudaginn 10. september (sem er einmitt í dag), blásum við til skemmtihlaups fyrir alla fjölskylduna! Hlaupið hefst kl. 17:00 við Sundlaug Sauðárkróks og ekkert nema blíða í kortunum, hlýtt og stillt.Meira -
Það verður extra langur æfingaleikur í Síkinu í kvöld
Það má kannski segja að það sé hátíð í bæ á Króknum í dag. Ástæðan vitaskuld sú að þjóðarsport Skagfirðinga, körfuboltinn, vaknar til lífsins eftir sumarfrí. Karlaliðið lætur ljós sitt skína í Síkinu í kvöld í fyrsta æfingaleik haustsins en það er lið Hattar frá Egilsstöðum sem mætir á Krókinn. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir Arnar þjálfara Guðjónsson sem svaraði að bragði eins og vanalega. Arnar var spurður út í leik kvöldsins, standið á hópnum og ENBL-deildina.Meira -
Fundað um deiliskipulag gamla bæjarins á Króknum
Sveitarfélagið Skagafjörður efnir til samráðs- og vinnufundar vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir gamla bæinn á Sauðárkróki. Fundurinn verður haldinn í matsal Árskóla við Skagfirðingabrautin á Króknum mánudaginn 28. september á milli kl. 16:30 og 18:00. Íbúar eru hvattir til að mæta, kynna sér málið og koma sínum sjónarmiðum á framfæri.Meira
