Bókakynning í Safnahúsi - Sölvi Sveinsson og Skúli Björn Gunnarsson

23. nóvember kl. 17:00-18:00 Hvað er að gerast Safnahús við Faxatorg, Sauðárkróki
23 nóv

Skúli Björn Gunnarsson og Sölvi Sveinsson koma í Safnahúsið og kynna nýjar bækur sínar. Í bókinni Landslag kynslóðanna fléttar Skúli Björn minningum og sögum saman við örnefni og landslag til að koma vitneskjunni til næstu kynslóðar.

Sölvi sem er margreyndur skólamaður fjallar vítt og breitt um skólamál í bók sinni Skólabók. Er leikur að læra? Hér veltir Sölvi fyrir sér ýmsum spurningum sem brenna á okkur öllum, t.d. hvað er góður skóli, hvað er menntun og ekki síst hvað er framundan?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.