Bókakynning: Skuggar af Kili eftir Birgi Tjörva Pétursson

12. desember kl. 13:00-14:00 Hvað er að gerast Safnahúsið við Faxatorg
12 des

Rithöfundurinn Birgir Tjörvi Pétursson í heimsókn í Safnahúsinu laugardaginn 12. desember kl. 13:00.

Birgir Tjörvi, sem starfar sem lögmaður í Reykjavík, kynnir sína fyrstu skáldsögu, Skuggar af Kili.

Það hvílir bölvun á þessari fjölskyldu. Eftir dóm um banvænan sjúkdóm og sonarmissi verður Halldóri hugsað til gamalla sagna um fjölskyldubölvun sem rakin var til örlaga Reynistaðarbræðra sem urðu úti á Kili árið 1780. Í örvæntingu sinni gefur Halldór sig á vald þessarar sögu, um leið og hann tekst á við sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.

Í þessari áhugaverðu og vel fléttuðu sögu tekst höfundi að spegla aldagamla örlagasögu og átakanlegan tilvistarvanda nútímamanns. Jafnhliða er lesanda boðið í ferðalag þar sem kvikna gömul örlög, mannlegir brestir, þvermóðska, bölbænir og áhrínsorð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.