Háskólalestin - Opið vísindahús í Árskóla

18. apríl kl. 11:00-14:00 Hvað er að gerast Árskóli, Sauðárkróki
18 apr
Háskólalest Háskóla Íslands býður öll hjartanlega velkomin í Opið vísindahús í Árskóla, laugardaginn 18. apríl frá kl. 11:00 til 14:00. Þetta er kjörið tækifæri fyrir forvitna krakka, foreldra, ömmur, afa og alla sem vilja upplifa vísindin á lifandi og spennandi hátt!
Gestir á öllum aldri geta til að mynda prófað styrk sinn og hreyfigetu, kynnst japanskri menningu og origami, saumað í gervihúð líkt og skurðlæknar og séð vatnseldflaugum skotið hátt upp í loft.
Þá er hægt að taka þátt í hreyfiáskorunum með sjúkraþjálfara, fylgjast með fallbyssum í skotkeppni og prófa að taka eigin fréttaviðtöl.
Gestir fá tækifæri til að skoða vélmenni og Micro:bit, skapa með FabLab Sauðárkróki, kynnast fræðum Háskólans á Hólum og skyggnast í safnastarf og fornleifar - í fortíð, nútíð og framtíð með Byggðasafni Skagfirðinga.
Aðgangur er ókeypis og engin skráning nauðsynleg.
Hlökkum til að sjá ykkur í vísindastuði á Sæluviku!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.