Heilahjálp með fræðslu á Sauðárkróki
6. október kl. 16:30-17:30
Hvað er að gerast
Húsi Frítímans, Sauðárkróki
6
okt
Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Nú er förinni heitið í Skagafjörðinn þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi á Sauðárkróki.
Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.
Þri. 6. október kl. 17:30
Hús Frítímans, Sæmundargötu 7
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.
Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.