Þverárfjallsvegur lokaður vegna bílveltu
Snemma í morgun valt mjólkurflutningabíll með tengivagn, rétt austan bæjarins Skarðs ofan Sauðárkróks. Ekki er vitað um tildrög slyssins en ökumaður var fluttur á heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki til skoðunar. Vonast er til að meiðsli hans séu ekki mikil.
Ljóst er að nokkur stund mun líða þar til verður hægt að opna veginn aftur. Ökumönnum er bent á veginn yfir Vatnsskarð. Hægt er að fylgjast með framvindu mála á umferdin.is /hmj
