20. nóvember kl. 19:00-22:00Hvað er að gerastHofsstöðum, Skagafirði
20nóv
Jólahlaðborð á Hofsstöðum lausar dagsetningar: 20. og 21. nóvember 27. nóvember 4. og 5. nóvember Nánari upplýinsgar í síma 4537300 eða á info@hofsstadir.is
Skagfirski kammerkórinn og 7.bekkur Varmahlíðarskóla bjóða til dagskrár mánudaginn 16. nóvember kl. 20 á Löngumýri. Ljóð Halldórs Laxness verða lesin og sungin og skáldið kynnt. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.
Í samfélagsumræðunni er gjarna rætt um mikilvægi þess að fólk sem flytur til Íslands læri tungumálið, aðlagist samfélaginu og taki virkan þátt. En sem samfélag mættum við horfa aðeins í eigin barm og spyrja: hvað gerum við til þess að öll upplifi að þau tilheyri samfélaginu okkar?
Nýjar háupplausnar loftmyndir voru teknar af öllum þéttbýlisstöðum á Norðurlandi vestra síðastliðið sumar. Teknar voru meðal annars myndir af Blönduósi, Sauðárkróki, Skagaströnd og Hvammstanga svo nokkrir staðir séu nefndir. Myndirnar hafa nú verið birtar á kortasjám sveitarfélaganna sem hægt er að nálgast á heimasíðum þeirra og á www.map.is
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Andri Már Sigurðsson (1984), sem stundum skúrar blúsheiminn undir nafninu Joe Dubius, er sennilega best þekktur sem aðalrödd og gítar- og banjóleikari í framlínu Contalgen Funeral. „Þegar ég var yngri komst ég í plöturnar hans pabba, hlustaði mikið á Queen, Bubba, CCR , Deep Purple og allskonar. Svo voru það bílferðir með mömmu til Hólmavíkur þar sem Abba og Sálin voru ráðandi. Núna er ég aðallega að hlusta á upptökur sem fara á næstu plötu með Contalgen Funeral, maður spilar þetta þar til maður fær hálfgert ógeð á þessu.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.