Jólatónleikar í Bifröst - Lára og húsið í Sléttuhlíð
Lára Sigurðardóttir og hljómsveitin Húsið í Sléttuhlíð syngja og leika lágstemmda tónlist fyrir gesti.
Lára Sigurðardóttir er ung og upprennandi söngkona sem heillað hefur alla sem á hana hafa hlýtt með söng sínum. Hljómsveitin Húsið í Sléttuhlíð samanstendur af gömlum refum í tónlistinni sem hafa leikið saman í nokkur ár. Þeir eru: Rögnvaldur Valbergsson píanó hljómborð, Margeir Friðriksson bassi, Sigurður Björnsson trommur, banjó, mandólín, Guðmundur Ragnarsson gítar.
Tónlistin sem boðið er uppá er úr ýmsum áttum, gömul og ný, íslensk og erlend með jólalögum í bland.


Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.