21. október kl. 18:00-20:30Hvað er að gerastBifröst, Sauðárkróki
21okt
Leikfélag Sauðárkróks sýnir í Bifröst Blái hnötturinn í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar. Hægt að panta miða í síma 849-9434 milli kl. 16 og 18 á sýningardögum.
Það var hátíðleg stund á Hólum í Hjaltadal föstudaginn 9. október sl. þegar 26 nemendur luku námi frá Háskóla Íslands á Hólum. Dagurinn var sérstakur bæði fyrir nemendur og skólann, því þetta var fyrsti hópurinn sem útskrifaðist undir nýju nafni skólans og fyrsti nemendahópurinn sem útskrifast frá háskólasamstæðu Háskóla Íslands.
Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga þann 8. október 2026 lagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um lítil hjúkrunarheimili með 10–12 íbúum. Þetta eru mikilvæg orð sem ber að fagna. En þau vekja jafnframt áleitnar spurningar um framtíð þessara heimila þegar heilbrigðisstofnanir landsins standa frammi fyrir miklum kröfum um niðurskurð og hagræðingu.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Birkir Rafn Gíslason, fæddur 1981, var alinn upp á Skagaströnd. Birkir Rafn er bráðsnjall gítarleikari og meðal helstu afreka á tónlistarsviðinu segir hann hafa verið að spila á Glastonbury tónlistarhátíðinni 2008 og gefa út sólóplötuna Single Drop árið 2007. „Ég túraði um Bretland í haust með söngkonunni Beth Rowley og spiluðum við t.d. á sögufrægum stað í London sem heitir Sheperd's Bush Empire þar sem meðal annars Led Zepplin og Rolling Stones spiluðu í gamla daga.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.