Og það er Helga og Helga og Helga og ...

Á myndinni eru frá vinstri: Helga Sig, Guðrún Helga, Helga Rós, Helga Rós, Helga Rósa, Helga Þorbjörg, Þuríður Helga og Helga Sjöfn. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI
Á myndinni eru frá vinstri: Helga Sig, Guðrún Helga, Helga Rós, Helga Rós, Helga Rósa, Helga Þorbjörg, Þuríður Helga og Helga Sjöfn. MYND: VARMAHLÍÐARSKÓLI

Það er ekki öll vitleysan eins eins og segir í kvæðinu. Í ágætri frétt á vef Varmahlíðarskóla segir af því að af 34 starfsmönnum skólans bera átta nafnið Helga. Ekki kemur fram hvort þetta hafi valdið veseni hjá nemendum og öðru starfsfólki.

Í fréttinni segir: „Nú á haustdögum urðu ýmsar hræringar í starfsmannahóp Varmahlíðarskóla og ekkert óeðlilegt við þær breytingar. Þó má telja sérstakt að átta Helgur finnist innan skólans sem telur 34 starfsmenn! Þessar tölur má svo nota í stærðfræði handa nemendum í prósentureikning.“

Gaman að segja frá því.

Fleiri fréttir