Sumarið gekk vel, var annasamt og skemmtilegt | BRYNJAR MORGAN
Íþróttagarpur Feykis að þessu sinni er Brynjar Morgan Brynjarsson en hann er fæddur í janúar á því góða ári 2012. Hefur búið á Skagfirðingabrautinni á Sauðárkróki frá því daginn áður en hann kom í heiminn en þá fluttu foreldrar hans allt sitt hafurtask á Krókinn.
Að sögn móður hans mætti segja að þetta hafi verið í eina skiptið sem Brynjar hafi verið að flýta sér í lífinu því hann var mættur tveimur vikum fyrir settan dag. Foreldar hans eru Sigríður Garðarsdóttir og Brynjar Morgan Gunnarsson en hann á einnig yngri systur sem er örlítið fyrirferðameiri en hann sem heitir Nína Morgan. Það býr svo einn hárlaus köttur (sem heitir Moggi) á heimilinu sem lætur alla snúast í kringum rassinn á sér.
Aðalíþróttagrein Brynjars þessa dagana er golfið en körfubolti á einnig stóran sess í hans lífi og hefur stundað þær báðar frá unga aldri. Brynjar æfði einnig fótbolta lengi vel en þurfti að velja á milli íþróttagreina þegar svokallað jumper´s knee fór að gera vart við sig en það eru bólgur í sin sem liggur frá hnéskelinni. Hann segist ekki hafa verið duglegur að prufa að æfa aðrar íþróttir, einfaldlega vegna tímaskorts, en hver veit hvað gerist í framtíðinni og er lífsmottóið hans að lifa, njóta og hafa gaman.
Hvað er skemmtilegast við þína aðal íþróttagrein? Það sem er skemmtilegast við golfið er hversu fjölbreytt það er. Þú getur spilað sama völlinn aftur og aftur en þú spilar hann aldrei eins og ert alltaf að keppa við sjálfan þig, að gera betur í dag en í gær. Það er svo auðvitað alltaf gaman að spila í góðra vina hópi.
Hvað er leiðinlegast? Get ekki sagt að það sé neitt leiðinlegt en það getur reynt vel á andlegu hliðina þegar ekkert gengur upp en einnig þegar maður þarf að spila nokkra daga í röð í rigningu og roki því maður er að keppa á móti og maður hættir ekki í miðri keppni.
Helstu íþróttaafrek? Mig langar til að nefna fernt. Fyrst þegar við í GSS urðum deildarmeistarar á Íslandsmóti golfklúbba 12 ára og yngri sumarið 2023. Svo vorum við liðsfélagar mínir í MB11 í körfubolta Íslandsmeistarar vorið 2024, sem var geggjað. Þegar ég vann 1. deildina á Meistaramóti GSS í fyrra en þá áttum við Örn læknir svakalega spennandi síðustu holur sem endaði mér í hag. Síðast en ekki síst þegar ég varð í öðru sæti á Íslandsmótinu í holukeppni á Selfossi í sumar í hópi 13-14 ára. Endaði í bráðabana en tapaði því miður – var því hársbreidd frá því að verða Íslandsmeistari.
Hvernig hefur gengið í golfinu í sumar? Það gekk heilt yfir vel hjá mér í sumar og var það satt best að segja ótrúlega annasamt og skemmtilegt. Byrjaði á Golf14 móti á Nesinu í maí með frábærum árangri, endaði í 4. sæti en var samt á jafn mörgum höggum og þeir sem voru í 2. og 3. sæti en þar sem ég átti verstu síðustu holu af okkur þrem þá endaði ég fjórði. Náði svo að spila mig inn í meistaraflokk karla sem tók mig með á Íslandsmótið í sveitakeppni golfklúbba sem haldið var í Vestmannaeyjum. Þar spilaði ég frábærlega og kom reynslunni ríkari heim þrátt fyrir að við duttum niður í 3. deild. Við komum bara sterkir upp aftur eftir næsta sumar.
Skemmtilegasta augnablikið? Hér langar mig að nefna tvennt… Þegar við urðum deildarmeistarar sumarið 2023 þá átti ég síðasta pútt dagsins. Ef ég hefði klikkað þá hefðum við endað í 2. sæti en þar sem púttið fór niður þá unnum við. Þetta er allt til á videói sem er mjög skemmtilegt að horfa á því spilafélagar mínir eru frekar stressaðir á hliðarlínunni og fagnaðarlætin þegar boltinn fór niður voru skemmtileg. Svo átti ég tvö góð augnablik á síðasta móti ársins í ár, Unglingaeinvíginu, sem haldið var hjá GM í Mosfellsbæ. Þar fá þeir afrekskylfingar sem stóðu sig best á Íslandsmótunum í holukeppni og höggleik í sumar boð um að keppa. Þarna voru 30 krakka á aldrinum 13-18 ára komnir til að etja kappi í höggleik. Þar átti ég tvö frábær 10-12 metra pútt eftir að ég tryggði mér inn í úrslitin, aðeins tíu krakkar sem komust áfram, þar endaði ég í 4. sæti.
Neyðarlegasta atvikið? Ætli það sé ekki þegar ég var að spila á meistaramóti GSS í sumar. Ég var í holli með Atla Frey, golfþjálfaranum mínum, sem týndi boltanum sínum og ég var að hjálpa honum að leita. Fann bolta og kallaði á Atla og spurði hvort hann hafi verið með New Balance bolta sem hann neitaði því hann var með Bridgestone bolta. Ég spurði hann svo hvort hann vildi nota boltann sem ég fann og rétti honum hann og þá kom auðvitað í ljós að þetta var boltinn hans, ég ruglaðist bara aðeins en New Balance er sem sagt vinsælt skómerki.
Ef þú mættir fá einn eiginleika frá atvinnugolfara, hvaða eiginleiki væri það? Það væri sá eiginleiki að vera með betri lengdarstjórnun á inná höggum á flötina og hugarfarið.
Hvaða golfvöll langar þig mest til að prufa að spila og hver er besti völlurinn sem þú hefur spilað á á Íslandi? Ég væri til í að prufa að spila á Brautarholtinu, sem er um 15 mín. frá Reykjavík. Annars finnst mér besti völlurinn sem ég hef spilað á vera í Vestmannaeyjum en uppáhalds er á Nesinu, þar hefur mér alltaf gengið mjög vel.
Ertu með einhverja sérvisku eða hjátrú fyrir leiki/mót/keppni? Nei hef ekki ennþá tileinkað mér eitthvað en það gæti komið einhvertíma.
Uppáhalds íþróttamaður? Uppáhalds erlendi golfarinn er Ludvig Åberg sem er sænskur atvinnugolfari. Uppáhalds íslenski golfarinn er atvinnukylfingurinn Logi Sigurðsson úr Golfklúbbi Suðurnesja, hann varð t.d. Íslandsmeistari í holukeppni árið 2024 og er í dag landsliðsþjálfari kvenna.
Heldurðu með einhverju liði í Enska boltanum? Held ekki með neinu sérstöku liði en ef ég þarf að velja þá verð ég að segja Liverpool því annars myndu Eiður og Þórey afneita mér úr Stóragerðisfjölskyldunni, djók.
Ef þú mættir velja þér andstæðing, hver myndi það vera og í hvaða grein mynduð þið spreyta ykkur og hvernig myndir þú lýsa þeirri rimmu? Ætli ég verði ekki að segja Logi Sigurðsson og við færum í holukeppni. Það væri gaman að sjá hvort ég ætti smá séns í hann en hann myndi að sjálfsögðu vinna mig, bara spurning á hvaða holu.
Helsta fyrirmynd í lífinu? Ég verð að nefna þjálfara minn í golfi þó ég eigi mér nokkrar góðar fyrirmyndir en hann hefur kennt mér margt og ég lít mikið upp til. Atli Freyr Rafnsson heitir kappinn og hefur þjálfað mig síðan ég byrjaði í golfi sem var í kringum átta ára aldurinn. Það er líka honum að þakka að ég byrjaði að æfa því foreldrar mínir höfðu engan áhuga á golfi þá. Hann sá að það var eitthvað sem blundaði í mér og að ég gæti orðið mjög góður ef ég héldi áfram að æfa og hvatti mig áfram. Hann á því stóran þátt í því hvar ég stend í golfíþróttinni í dag og vonandi heldur hann áfram að þjálfa okkur næsta sumar.
Hvernig myndirðu lýsa sjálfum þér sem íþróttamanni? Rólegur, yfirvegaður og einbeittur.
Hvað er verið að gera þessa dagana? Það er eitthvað lítið spennandi að gerast akkúrat núna, er að koma mér af stað í körfuboltanum, fyrsti leikurinn er 9. október. Í skólanum þá byrjaði ég í 9. bekk í haust og það er bara að læra og hafa gaman með vinum mínum.
