Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér
og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer.
En ég vona bara að hann hugsi svolítið hlýlega til mín
og leiði mig á endanum aftur til þín.
Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga þann 8. október 2026 lagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um lítil hjúkrunarheimili með 10–12 íbúum. Þetta eru mikilvæg orð sem ber að fagna. En þau vekja jafnframt áleitnar spurningar um framtíð þessara heimila þegar heilbrigðisstofnanir landsins standa frammi fyrir miklum kröfum um niðurskurð og hagræðingu.
Lóa Travel og Selasetur Íslands vinna nú að þróun á stafrænni miðlun upplýsinga um Vatnsnes, ásamt því að hanna og bjóða upp á samsettar hópaferðir á svæðinu. Verkefnið hlaut nýverið styrk úr evrópska PHOENIX 4.0 verkefninu, sem m.a. er stýrt af Íslenska ferðaklasanum.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Helstu tónlistarafrek: Eru að eigin mati að hafa haldið 90 mínútna langa klassíska gítartónleika í Hvammskirkju í Laxárdal á sama tíma og ísbirnir voru á vappi á Skaganum og sloppið lifandi. Kirkjan var troðfull af Skagabændum og öðru góðu fólki. Svo hef ég spilað alveg fullt við allskonar aðstæður en er alltaf stoltur yfir því að hafa fengið að frumflytja gítarverkið "Dulcinea" f. gítar og strengjasveit e. Þorkel Sigurbjörnsson í Dómkirkjunni í Linköping.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.