Sæluvikuball í Miðgarði

17. apríl kl. 20:00-23:00 Hvað er að gerast Miðgarður, Varmahlíð
17 apr

Það er af sem áður var þegar böll voru á hverju kvöldi í Sæluvikunni. En Pilsaþytur í Skagafirði lætur ekki deigan síga og heldur gömludansaball í Miðgarði föstudagskvöldið 17. apríl frá 20:00 til 23:00. Nú dönsum við eins og enginn sé morgundagurinn. Stulli og félagar leika fyrir dansi. Aðgangseyri verður stillt mjög í hóf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.