Síðasta sveitaballið - Greifarnir

11. september kl. 22:00 Hvað er að gerast Menningarhúsið Miðgarður, Skagafjörður
11 sep

Í 40 ár hafa Greifarnir verið hluti af íslenskri tónlistarsögu, órjúfanlegur hluti af sveitaböllum, sumrum og minningum sem lifa áfram.

Núna er komið að enn einum kaflanum.

„Síðasta sveitaballið“ er sérstök tónleikaferð þar sem Greifarnir heimsækja valda staði víða um land og kveikja aftur á stemningunni sem margir vilja meina að sé horfin, en hún er það alls ekki.

Þetta eru ekki hefðbundnir tónleikar.

Þetta er kvöld þar sem þú syngur með, dansar, hittir fólk, hlærð og finnur aftur þessa tilfinningu sem við þekkjum öll.

Á dagskránni eru öll helstu lög Greifanna ásamt vel völdum perlum sem hafa fylgt okkur öllum í gegnum tíðina.

Hvort sem þú varst á böllum með okkur fyrir 20 árum eða ert að upplifa þetta í fyrsta sinn, þá er þetta kvöld fyrir þig.

Ekki missa af þessu.
Þetta gerist bara einu sinni.

Greifarnir - Tónleikaferðin Síðasta sveitaballið | Tix

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.