Sjálfsmynd & samskipti

7. október kl. 17:00-19:00 Hvað er að gerast Vefnámskeið
7 okt

Vefnámskeið

Hvað er sjálfsmyndin þín – og hvernig hefur hún áhrif á samskipti þín? Þetta er gagnvirkur fyrirlestur þar sem við skoðum tvo af grundvallarmálefnum mannlegs lífs: sjálfsmyndina og samskiptin – og hvernig þau tvinnast óaðskiljananlega saman.

Við skoðum sjálfsmyndina í dýpt: hvað hún er, hvort hún sé eitthvað eitt og óbreytt, hvaðan hún kemur og hvað mótar hana, hvað viðheldur henni eða breytir henni – og hvaða áhrif hún hefur á líf okkar og líðan. Við horfum einnig á samskiptin: hvernig við samskiptum við okkur sjálf og við aðra, hvað hefur áhrif á samskiptastíl okkar, og hvort við hlustum til að hlusta og skilja – eða einungis til að svara. Við kynnum okkur mismunandi samskiptastíla og hvað þeir þýða í reynd.

Leiðbeinandi: Ingibjörg Þórðardóttir, klínískur félagsráðgjafi.

Ingibjörg er klínískur félagsráðgjafi og er stofnandi og eigandi Hugrekkis, ráðgjafar og fræðslu, og hefur starfað á sviði félagsráðgjafar og fræðslu í meira en tvo áratugi.

Ingibjörg hefur víðtæka reynslu af samtalsmeðferð, hópvinnu og fræðslu – meðal annars á sviði áfalla, ofbeldis og mannlegra samskipta. Hún hefur starfað sem stundakennari við Háskólann á Akureyri, tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum og birt fræðigreinar í ritrýndum tímaritum. Hún hefur einnig lokið þjálfun í TRM – Trauma Resilience Model – sem er gagnreyndur aðferðafræðilegur rammi við úrvinnslu áfalla.

Verð: 22.900kr*

Hvar og hvenær:

vefnámskeið 7. október klukkan 17:00-19:00

Skáning: Sjálfsmynd & samskipti – Fyrirlestur með umræðum – Farskólinn

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.