Tengill styrkir stöðu sína á Eyjafjarðarsvæðinu
Tengill hefur keypt Ljósgjafann á Akureyri. Frá þessu segir á Akureyri.net en þar staðfestir Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri Tengils kaupin en tekur fram að viðskiptin hafi verið send til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu, sem þarf að staðfesta kaupin. Á heimasíðu Ljósgjafana segir að Ljósgjafinn ehf. búi yfir áratuga reynslu í öllu því sem snýr að rafmagni og raftæknibúnaði og þjónusti bæði fyrirtæki og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu af metnaði og alúð.
Starfsmenn Ljósgjafans eru liðlega tuttugu og velta félagsins á síðasta ári var um 400 milljónir króna, samkvæmt ársreikningi. Félagið telst vera með sterka stöðu á Eyjafjarðarsvæðinu á sviði raf- og tæknilausna.
Fram kom í frétt Feykis í júlí að hjá Tengli starfa að jafnaði um 100 manns og er félagið með starfsstöðvar á Sauðárkróki, Blönduósi, Hvammstanga, Akureyri, Reykjavík og í Þorlákshöfn en í fréttinni var verið að segja frá opnun útibúsins þar. Velta Tengils á síðasta ári var nærri 1,8 milljarðar króna, samkvæmt ársreikningi.
„Með þessum kaupum sjáum við ýmis sóknarfæri enda er hér um að ræða tvö öflug fyrirtæki með afar hæft starfsfólk á sínu sviði. Bæði eru þessi fyrirtæki rótgróin og hafa þjónustað breiðan hóp viðskiptavina við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Þessi kaup styrkja reksturinn án efa. Ég hlakka því til að byggja upp enn frekari starfsemi á Akureyri. Sóknarfærin liggja sannarlega víða,“ segir Gísli í samtali við Akureyri.net og tekur einnig fram að öllum starfsmönnum Ljósgjafans verði boðið að starfa áfram gangi kaupin eftir.
