Sunnudagar á safni - í Skagafirði

26. apríl kl. 13:00-17:00 Hvað er að gerast Skagafjörður
26 apr

Verkefnið Sunnudagar á safni, sem er hluti af samstarfi safna hjá SSNV, heldur áfram sunnudaginn 26. apríl, en þá færist dagskráin í Skagafjörð. Markmið verkefnisins er að efla samstarf safna, setra og sýninga á Norðurlandi vestra og bjóða íbúum og gestum upp á sérstaka menningarupplifun yfir vetrartímann, þegar margir þessara staða eru annars lokaðir.

Opið verður hjá Sögusetri íslenska hestsins á Hólum kl. 13–18 þann 26. apríl og í tilefni dagsins verður aðgangseyrir aðeins 1000kr!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.