Vortónleikar kórs eldri borgara í Húnaþingi vestra
Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra heldur vortónleika sína í Hvammstangakirkju miðvikudaginn 29. apríl kl. 20.00. Á efnisskránni eru fjölbreytt lög úr ýmsum áttum, m.a. eftir Sigfús Halldórsson, Magnús Eiríksson og Þorvald Pálsson. Stjórnandi og undirleikari er Daníel Arason. Aðgangseyrir 3.000 kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.