Guðmar Hólm Ísólfsson valinn á ný í U21 landslið Íslands í hestaíþróttum

Guðný Dís Jónsdóttir og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal hafa verið valin í U21 landslið Íslands í hestaíþróttum. Mynd af Lhhestar.is.
Guðný Dís Jónsdóttir og Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal hafa verið valin í U21 landslið Íslands í hestaíþróttum. Mynd af Lhhestar.is.

Tveir nýir knapar hafa verið valdir inn í U-21 landsliðshóp Íslands í hestaíþróttum að þessu sinni en það eru þau Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal úr Hestamannafélaginu Þyt í Húnaþingi vestra og Guðný Dís Jónsdóttir úr Hestamannafélaginu Spretti Kópavogi og Garðabæ.

Á heimasíðu Landssambands Hestamanna segir að Hekla Katharína Kristinsdóttir landsliðsþjálfari hafi í vetur fylgst gaumgæfilega með þróun mála hjá unglingum og ungmennum (16-21 árs) á mótum sem af er. Hekla tilkynnti í haust að hópurinn væri opinn yfir tímabilið og fyrir utan góðan keppnisárangur er það forsenda fyrir valinu að knaparnir séu með hest falan í landsliðsverkefni ársins sem er HM í Hollandi.

Þar segir að Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal hafi margoft sýnt og sannað að hann er ungur knapi í fremstu röð og hefur á árinu átt flottar sýningar á Jökli frá Rauðalæk í fjórgangi Meistaradeildar KS og svo sigraði hann T2 í Vesturlandsdeildinni á Vildísi frá Múla.

Guðný Dís hefur einnig náð frábærum árangri í keppni og verið stígandi í sinni reiðmennsku að undanförnu. Hún gerði gott mót í töltkeppninni í Meistaradeild æskunnar á Straumi frá Hofsstöðum og í fjórgangi á Hraunari frá Vorsabæ II.

„Mótaraðir eru komnar á fullan skrið og fjöldi knapa gert góða hluti á hestum sínum þar. Meistaradeild ungmenna og Top Reiter og Mestaradeild æskunnar og Líflands eru mótaraðir sem vel er fylgst með ásamt yngri knöpum sem eru að taka þátt í öðrum mótum.

Í töltkeppni Meistaradeildar æskunnar og Líflands nú á dögunum voru gæðin frábær og þess má geta að 10 efstu knaparnir úr forkeppni eru allir þátttakendur í Hæfileikamótun LH eða í U-21 landsliðshópnum,“ segir á lhhestar.is.

Tengdar fréttir:
Tvö af Norðurlandi vestra í U21-landsliðshópur LH
Undirbýr hestana fyrir næsta keppnistímabil :: Íþróttagarpurinn Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir