A-Húnavatnssýsla

Heilbrigðiseftirlitin á Norðurlandi kanna hvað verður um útrunnin matvæli

Á vef Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra er fjallað um könnun, framkvæmd í samstarfi við Heilbrigðiseftirlitið á Norðurlandi eystra, þar sem athugað var hvað verði um matvæli sem seljast ekki í verslunum á Norðurlandi, áður en geymsluþolstími rennur út. Til þess að fá greinagóðar upplýsingar um afdrif matvælanna voru matvöruverslanir á Akureyri, Sauðárkróki og Siglufirði voru heimsóttar, auk þess sem rætt var við nokkra birgja verslana á svæðinu.
Meira

Dálítil rigning eða slydda fram á kvöld

Hæg suðlæg átt er á Ströndum og Norðurlandi vestra, en austan 5-13 á annesjum síðdegis. Dálítil rigning eða slydda fram á kvöld, síðan úrkomulítið. Suðaustan 5-13 og rigning seinni partinn á morgun. Hiti 1 til 7 stig.
Meira

Spilavíti eru „Víti til varnaðar“

Fyrir Alþingi liggur frumvarp um að lögleiða spilavíti eða spilahallir, sem er fínna orð yfir sama hlut. Við í Vinstri hreyfingunni grænu framboði leggjumst alfarið gegn lögleiðingu spilavíta og teljum það auka þann gífurlega vanda sem spilafíkn er og vinna gegn lýðheilsusjónarmiðum. Flutningsmenn frumvarpsins eru þingmenn úr röðum Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og úr Bjartri framtíð.
Meira

Strætó ekur alla páskadagana

Strætó mun aka alla páskadagana. Yfir hátíðisdagana verður ekið samkvæmt hefðbundinni sunnudags áætlun.
Meira

Hefur aldrei átt né selt kvóta

Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir alþing­ismaður (VG) hef­ur sent frá sér yf­ir­lýs­ingu vegna um­mæla ut­an­rík­is­ráðherra um að hún hafi ekki gert grein fyr­ir hags­mun­um sín­um um kvóta­sölu sína og fjöl­skyld­unn­ar. Í yfirlýsingunni segist Lilja Raf­ney hvorki hún né eig­inmaður­ hennar hafi átt eða selt kvóta.
Meira

Kvennatölt Norðurlands verður á skírdag

Kvennatölt Norðurlands fer fram 24.mars - skírdag og hefst klukkan 18:00 í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Keppt verður í þremur flokkum, Opnum flokki, minna vönum og 17 ára og yngri. Veitt verður einnig verðlaun fyrir flottasta parið og bestu útfærslu á þema, en þemað í ár eru páskarnir/gulir.
Meira

Suðlægar áttir ríkjandi næstu daga

Sunnan 3-8 og bjartviðri er á Ströndum og Norðurlandi vestra en 5-10 og þykknar upp á morgun. Hiti 4 til 10 stig að deginum, en nálægt frostmarki í innsveitum í nótt. Þá eru vegir greiðfærir um mestallt land.
Meira

Meta möguleika á vindorkuframleiðslu

Á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps í síðustu viku var tekin fyrir umsókn um stöðuleyfi Landsvirkjunar fyrir tvær stöðvar til veðurfarslegra athugana til að meta möguleika á vindorkuframleiðslu á Norðurandi vestra. Munu slíkar mælingar standa yfir í um eitt ár. Um er að ræða 60 metra há möstur og gert er ráð fyrir að önnur stöðin verði í landi Steinár 2-3 og hin á Auðkúluheiði.
Meira

Kennsla hafin á nýrri slátrarabraut við FNV

Kennsla í slátraraiðn hófst í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra um helgina. Slátrarabrautin er nýjung hjá skólanum en ekki hafa slátrarar verið útskrifast úr skóla hérlendis síðan upp úr 1990 hjá Iðnskólanum í Reykjavík. Að sögn Páls Friðrikssonar, slátrara, kjötiðnaðarmeistara og kennara við brautina, eru nemendurnir átta talsins sem sækja kennslustundir í byrjunaráföngum, þar af eru fimm í staðarnámi og þrír í fjarnámi. Alls eru 18 nemendur skráðir til náms.
Meira

Söngperlur Ellýjar og Vilhjálms í Hofi á Akureyri

Á fimmtudagskvöldið verða Söngperlur Ellýjar og Vilhjálms fluttar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Eru þetta lokatónleikarnir, en dagskrána hafa Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar flutt við miklar vinsældir síðan í fyrra vor.
Meira