A-Húnavatnssýsla

Tæpar 70 milljónir í styrki

Föstudaginn 1. apríl sl. úthlutaði Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra styrkjum við athöfn í Félagsheimilinu Ljósheimum, Skagafirði. Styrkirnir eru veittir skv. samningi ríkisins og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra um Sóknaráætlun Norðurlands vestra 2015-2019 og er Uppbyggingarsjóðurinn sá hluti samningsins er snýr að styrkveitingum í ofangreindum málaflokkum.
Meira

Bónus opnar verslun við Freyjugötu

Frestur til að senda inn kauptilboð í gamla barnaskólahúsið við Freyjugötu á Sauðárkróki er runninn út og hefur verið farið yfir umsóknir. Besta tilboðið barst frá Hagar Verslanir ehf. sem rekur Bónusverslanir um allt land og er ætlunin að opna nýja verslun í húsinu. „Við höfum ekki opnað nýja verslun um nokkurt skeið og höfum lengi haft augastað á Skagafirði. Þegar við sáum húsnæðið auglýst til sölu stukkum við á tækifærið,“ sagði talsmaður verslunarkeðjunnar í samtali við Feyki.
Meira

Fjögur verkefni á NLV hljóta styrki úr AVS sjóðnum

AVS sjóðurinn hefur lokið umfjöllun sinni vegna umsókna ársins og ákveðið hvaða verkefni hljóta styrki í ár. AVS er eins og kunnugt er skammstöfun fyrir „Aukið virði sjávarfangs“ og verkefni sem hljóta styrki hafa það að markmiði. Meðal styrkhafa eru fjögur verkefni á NLV.
Meira

Styttist í beinar rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar

Beinar áætlunarferðir Gray Line milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar hefjast sunnudaginn 17. apríl næstkomandi. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september. Upphaflega var áformað að hefja aksturinn 3. apríl en því þurfti að fresta vegna óvæntra tafa við innleiðingu á nýrri bókunarvél á netinu.
Meira

Tvö verkefni við Háskólann á Hólum hljóta rannsóknarstyrki

Rannís hefur birt yfirlit yfir úthlutun til nýrra rannsóknaverkefna fyrir árið 2016. Alls hlutu 72 verkefni styrki, eða 25% þeirra sem sótt var um fyrir. Á vef Hólaskóla kemur fram að tveir þessara styrkja koma í hlut rannsóknarhópa við Háskólann á Hólum og eru verkefnisstjórar þau Camille Anna-Lisa Leblanc og Stefán Óli Steingrímsson, sérfræðingar við fiskeldis- og fiskalíffræðideild skólans.
Meira

Óskað eftir viðbrögðum frá húseigendum

Sveitarfélagið Skagaströnd stefnir á áframhaldandi lagningu ljósleiðara í Sveitarfélaginu. Samkvæmt fréttatilkynningu á vef sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að lögbýlum, íbúðar- og frístundahúsum í dreifbýlinu við Skagaströnd bjóðist að fá ljósleiðaratengingu. Um er að ræða húsin Laufás, Réttarholt, Sólvang, Ásholt, Ás, Litla Fell og frístundahúsið Snorraberg. „Óskað er eftir viðbrögðum umræddra húseigenda ef þeir hafa ekki áhuga á ljósleiðaratengingu,“ segir í tilkynningu frá sveitarstjóra.
Meira

Kúa- og sauðfjárbændur samþykktu nýja búvörusamninga

Atkvæði hafa verið talin í atkvæðagreiðslu bænda um nýja samninga um starfsskilyrði nautgripa- og sauðfjárræktar en frestur til að greiða atkvæði rann út á miðnætti þriðjudagskvöldið 22. mars. Bændur samþykktu báða samningana.
Meira

Bilun í símkerfi

Símkerfið hjá Feyki og Nýprenti, ásamt fleiri stöðum á Sauðárkróki, liggur niðri eins og er. Verið er að leita orsaka bilunarinnar og það vonandi skýrist von bráðar.
Meira

Keppt í gæðingafimi á miðvikudagskvöld - ráslisti KS-Deildarinnar

KS-Deildin heldur áfram nk. miðvikudagskvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki þegar keppt verður í gæðingafimi og hefst keppnin kl. 19:00. „Frábærir hestar eru skráðir og hlökkum við til að sjá sem flesta í höllinni á miðvikudaginn,“ segir í fréttatilkynningu.
Meira

Sýningin „Þetta reddast“ í Bílskúrsgallerýinu við Kvennaskólann

Listamenn marsmánaðar munu halda sýningu á verkum sínum, á morgun þriðjudaginn 29. mars, frá kl. 17:00 til 19:00. Sýningin ber nafnið „Þetta reddast“ og verður haldin í Bílskúrsgallerý (Lönguvitleysu) við Kvennaskólann á Blönduósi.
Meira