A-Húnavatnssýsla

Opinn fundur um nýjan vegvísi í ferðaþjónustu

Miðvikudaginn 9. desember verður haldinn opinn kynningarfundur í Eyvindarstofu á Blönduósi um nýjan vegvísi í ferðaþjónustu og hefst hann klukkan 12:00. Á fundinum munu Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fjalla um áhersluatriði vegvísisins og Stjórnstöðvar ferðamála ásamt því að eiga samtal við fundarmenn.
Meira

„Markmiðið að búa fyrirtækjum góða vist eða draga þau til okkar“

Félagið Ámundakinn ehf. var stofnað á Blönduósi árið 2003, og var fyrsta verkefni þess að ná þangað ullarþvottastöð Ístex sem fram að því hafði verið í Hveragerði. Helstu markmið félagsins nú eru að stuðla að jákvæðri byggðaþróun og byggðafestu, einkum með því að laða fyrirtæki á svæðið og bjóða þeim fyrirtækjum sem þar starfa góða vist og starfsaðstöðu.
Meira

Að leita langt yfir skammt

Á Norðurlandi vestra hafa þó nokkrir forystumenn í sveitarstjórnum lagt í miklar langferðir, þeir hafa farið alla leið til Kína, til þess að biðla til þarlendra um að koma upp iðjuveri við Skagaströnd. Auðvitað er rétt að skoða alla möguleika til atvinnusköpunar, en þá er nánast kjánalegt að rýna ekki í nærtækasta kostinn áður en heimdraganum er hleypt svo langar leiðir.
Meira

Ástin er diskó, lífið er pönk frumsýnt í kvöld

Nemendafélag Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra frumsýnir söngleikinn Ástin er diskó, lífið er pönk eftir Hallgrím Helgason í Bifröst á Sauðárkróki í kvöld, miðvikudagskvöldið 18. nóvember. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson.
Meira

Sungu fyrir heimilisfólk á Sæborg

Börnin á Eldrikjarna í leikskólanum Barnabóli á Skagaströnd gerðu sér dagamun í tilefni af Degi íslenskrar tungu síðast liðinn mánudag. Heimsóttu þau dvalarheimilið Sæborg og sungu skólasönginn sinn og nokkur önnur lög fyrir heimilisfólk þar.
Meira

Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur

Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, fagnað í tuttugasta sinn í dag, en hann fæddist árið 1807. Efnt er til ýmissa viðburða í dag undir merkjum hátíðisdagsins en þess má geta að Dagur íslenskrar tungu er opinber fánadagur.
Meira

Laxasetur Íslands hættir rekstri sýningar

Laxasetur Íslands, sem opnað var að Efstubraut 1 í júní 2010, hefur hætt rekstri. Á Húna.is segir að ákvörðun um það hafi verið tekin á aðalfundi félagsins í síðasta mánuði. Skýringin er að reksturinn hefur ekki gengið sem skyldi þrátt fyrir ýmsar tilraunir, samkvæmt tilkynningu frá stjórn Laxasetursins.
Meira

Vilja aukin framlög til málaflokka mikilvæga fyrir byggðaþróun

Landshlutasamtök á öllu landinu, þar á meðal Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, hafa sent áskorun til ráðherra og alþingismanna að tryggja við gerð fjárlaga fyrir árið 2016 að aukin framlög verði til nokkurra málaflokka sem samtökin telja
Meira

Blönduósbær aðili að Wild Entrepeneurs umsókn

Í fundi byggðaráðs Blönduósbæjar, síðastliðinn mánudag, var lagt fram erindi frá G. Ágúst Péturssyni vegna „Wild Entrepeneurs“ umsóknar sem hlotið hefur vinnuheitið "Growth for Adventure Tourisn Entrepreneurs (GATE).
Meira

Rúmlega 104.000 fjár slátrað á Blönduósi

Sláturtíðin gekk vel hjá SAH Afurðum á Blönduósi í haust, enda þaulvant fólk sem kemur til starfa ár eftir ár og gengur í sínar stöður, að því er sagt er frá á vef Sölufélagsins. Alls var slátrað 104.196 fjár að þessu sinni sem er aukning um þúsund fjár frá því í fyrra.
Meira