A-Húnavatnssýsla

Fundi um vegvísi í ferðaþjónstu frestað

Vegna forfalla ráðherra verður því miður að fresta boðuðum kynningarfundi um vegvísi í ferðaþjónustu, sem halda átti á komandi mánudag 16. Nóv. kl 12 í Eyvindarstofu á Blönduósi. Nýr fundartími verður tilkynntur á allra næstu dögum.
Meira

Vegleg gjöf til Vallabóls

Konur í Kvenfélagi Svínavatnshrepps færðu leikskólanum Vallabóli í Húnavatnshreppi nýlega veglega gjöf en það var Hljóðasmiðja Lubba „Lubbi finnur málbein“, sem hjálpar íslenskum börnum að læra málhljóðin.
Meira

Hrafnhildur Ýr keppir í The Voice í kvöld

Söngspírurnar hljómfögru munu taka raddbönd sín til kostanna í sjöunda þætti The Voice Ísland í kvöld. Þættirnir hafa vakið verðskuldaða athygli en margir sitja spenntir yfir sjónvarpinu sínu og heyrst hefur að fólk jafnvel tárist yfir örlögum og gleði söngvaranna. Í kvöld mun Húnvetningurinn Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir syngja um áframhaldandi þátttöku.
Meira

Íbúar Skagabyggðar greiða lægsta útsvarið

Íbúar sveitarfélagsins Skagabyggðar greiða að meðaltali minnst í útsvar af landsmönnum. Útsvar á Skagaströnd er hins vegar það fjórða hæsta sem gerist á landsvísu. Um þetta var fjallað í Viðskiptablaðinu í gær.
Meira

Hanna og framleiða stóla úr flotholtum - fimmti þáttur Fyrirmyndarfrumkvöðla

Í fimmta þætti Fyrirmyndarfrumkvöðla er rætt við Hólmfríði Ósmann Jónsdóttur arkitekt og Einar Daníel Karlsson smið. Þau eru að fara af stað með framleiðslu á stólalínu sem þau kalla Floating Fender Chair og þau hanna og smíða í samstarfi við Hrefnu Björg Þorsteinsdóttur arkitekt og Ágúst Þorbjörnsson málmsmið. Verkefnið Floating Fender Chair er sprottið úr samstarfi við veitingastaðinn Sjávarborg á Hvammstanga.
Meira

„Hefur alltaf blundað í okkur að setjast að í sveit“

Hjónin Sveinbjörg Valdís Lúðvíksdóttir og Davíð Jónsson taka við rekstri Húnavers þann 1. desember næstkomandi. Þá verður sonur þeirra, Snorri Davíðsson, þeim til aðstoðar fyrstu mánuðina.
Meira

Útivistarfélög mótmæla skertum almannarétti í breytingum á náttúruverndarlögum

SAMÚT, samtök útivistarfélaga, Ferðaklúbburinn 4x4, Ferðafélag Íslands, Íslenski Alpaklúbburinn og Ferðafélagið Útivist mótmæla hugmyndum um skerðingu á almannarétti og umferðarétti sem fram kemur í frumvarpi um breytingu á náttúruverndarlögum sem nú liggur fyrir Alþingi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SAMÚT, samtökum útivistarfélaga.
Meira

„Minni mengun en frá öðrum álverum í Evrópu“

Eins og greint var frá í Feyki á dögunum var Ingvar Skúlason, framkvæmdastjóri Klappa ehf., gestur ársþings SSNV og fjallaði hann þar um áform um uppbyggingu álvers á Hafurstöðum í Skagabyggð. Greindi Ingvar frá því að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra, að undanskyldum Akrahreppi sem ekki hefur verðið boðin þátttaka, og stjórnvöld hefðu undirritað samstarfssamning um uppbyggingu orkufreks iðnaðar á svæðinu.
Meira

Öryggismál sjómanna í forgang

Öryggismál sjómanna hafa mikið verið í umræðunni undanfarið í ljósi hörmulegs sjóslyss sem varð í sumar þegar Jón Hákon BA–60 sökk út af Aðalvík og einn maður fórst en þrír komust lífs af þegar nálægur bátur kom þeim til bjargar á ögurstundu.
Meira

Stefnumótunarfundur Nes Listamiðstöðvar

Nes Listamiðstöð boðar til opins fundar fimmtudaginn 12. nóvember á veitingastaðnum Borginni. Fundurinn hefst kl 18:00 og er áætlað að hann standi til 21:00 með hléi þar sem boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi.
Meira