Af hverju?

Í Húnaþingi vestra hefur öflug leikstarfsemi verið við lýði aftur til fjórða áratug síðustu aldar. Voru starfandi tvö félög frá þeim tíma, sem síðari árin nefndust Leikflokkurinn á Hvammstanga og Leikdeild Ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka. Árið 2015 settu leikfélögin í samstarfi upp söngleikinn Súperstar og má segja að sú sýning hafi vakið verðskuldaða athygli langt út fyrir sýslumörkin. Árið 2017 setur Leikflokkurinn á Hvammstanga upp sýningu þar sem þátttakendur voru úr báðum félögunum og í framhaldinu var ákveðið að sameina félögin í Leikflokk Húnaþings vestra með heimilisfestu í Félagsheimilinu á Hvammstanga.

Frá sameiningu hefur starfsemi flokksins verið mjög virk og var leikárið 2018-2019 mjög viðburðarríkt. Leikflokkurinn setti upp barnaleikritið Snædrottninguna um jólin 2018 og söngleikinn Hárið um páskana 2019. Bæði verkin komu sterklega til greina í Áhugaverðustu áhugaleiksýningu ársins 2019 og úr varð að Hárið var valið. Var því leikflokknum boðið að koma með söngleikinn í Þjóðleikhúsið þar sem sýndar voru tvær sýningar fyrir fullu húsi.

Það eru ekki mörg leikfélög á landsbyggðinni sem hafa þann mannafla og aðstöðu sem Leikflokkur Húnaþings hefur. Er þá ekki aðeins um leikara að ræða, heldur einnig leikstjóra, hljóðfæraleikara, söngvara, hljóð- og ljósamenn, förðun, hár og áfram mætti telja. En hins vegar er staðreyndin sú að leikflokkurinn þarf ár hvert að leigja búnað með tilheyrandi kostnaði þar sem viðeigandi búnaður er ekki til staðar í húsnæði leikflokksins. Að auki hafa þátttakendur gefið alla vinnu til að aðstaða áhorfenda sé sem best. Sem dæmi má nefna að við uppsetningu á Súperstar og Hárinu voru um 550 vörubretti borin inn í hús og utan um þau smíðaður áhorfendapallur svo að allir sæju vel til sviðs. Ekki má gleyma vinnunni við að taka það svo allt niður aftur.

Þar sem starfsemi leikflokksins hefur gengið vel hefur hann getað kostað tæki og búnað í húsnæði félagsheimilisins og má þar nefna upphækkandi áhorfendapalla. En það er eins og dropi í hafið m.v. það viðhald sem er nauðsynlegt til að í félagsheimilinu sé viðunandi aðstaða fyrir leikflokkinn, gesti og aðra viðburði sem fram fara í húsinu.

Félagsheimilið á Hvammstanga er hjarta samfélagsins og er vilji hjá notendum og sveitarfélaginu að gera það sem best úr garði að allir íbúar geti nýtt það í fjölbreytta menningarstarfsemi.

Eins og flestum er kunnugt um var gerður menningarsamningur við sveitarfélagið Skagafjörð um uppbyggingu menningarhúss sem átti að þjóna Norðurlandi vestra. Var félagsheimilið Miðgarður í Skagafirði tekið í gegn og formlega opnað sem menningarhús árið 2009. Miðgarður á að þjónusta íbúa á Norðurlandi vestra og því voru ekki fleiri félagsheimili sem fengu samskonar upplyftingu.

Fyrir u.þ.b. ári síðan var lögð fram beiðni til ráðuneytis um að í fjárlagagerð yrði fjármagn sett í Félagsheimilið Hvammstanga enda færi ástand þess versnandi og húsið lægi undir skemmdum. Óskað var eftir að ríkið kæmi að viðhaldi félagsheimilisins með 70% fjárframlagi og sveitarfélagið kæmi á móti með 30%. Sveitarfélagið fékk munnlegt vilyrði frá ráðherra menntamála um að félagsheimilið fengi fjármagn í fjárlögum/fjármálaáætlun næstu þriggja ára. Þrátt fyrir þetta vilyrði var Félagsheimilið á Hvammstanga ekki í fjárlögum ársins 2021 né í fjármálaáætlun næstu þriggja ára. Í fjárlögum 2021 er gert ráð fyrir fjármagni í menningarhús á Sauðárkróki, þrátt fyrir að áður hafði verið sett fjármagn í menningarhús í Skagafirði um 25 km. frá því húsi sem nú á að rísa. Rétt er að geta þess að frá Hvammstanga til Sauðárkróks eða Varmahlíðar þar sem þessi tvö menningarhús verða eru 100 km. og bætast við 80 km. fyrir þá sem búa vestast í Húnaþingi vestra. Þessi hús nýtast ekki daglegri menningarstarfsemi í Húnaþingi vestra vegna þeirra vegalengda sem þangað eru sem og að yfir vetrartímann er yfir fjallvegi að fara sem oft á tíðum eru ófærir.

Leikflokkurinn spyr annars vegar; átti Miðgarður ekki að þjónusta allt Norðurland vestra? Og hinsvegar; fyrst að mögulega er búið að fella það úr gildi af hverju þá að færa sig um ca. 25 km (og í leiðinni innan sama sveitarfélags) þegar Norðurland vestra sem er mjög víðfemt svæði með fjallvegum, nær yfir 200 km. svæði eða yfir 7 sveitarfélög?

Stjórn Leikflokks Húnaþings vestra er farin að huga að næsta söngleikjaverkefni. Leikflokkurinn hefur þegar fjárfest í búnaði og tækjum sem liggja undir skemmdum ef ekkert verður gert. Við stærri sýningar eins og söngleiki þarf leikflokkurinn að leigja dýran búnað og mikilvægt að húsnæðið sé viðunandi og ekki sé hætta á að búnaðurinn skemmist t.d. vegna leka í þaki sem er umtalsverður á ákveðnum stöðum í húsinu sem og raka eða öðrum utanaðkomandi áhrifum.

Leikflokkur Húnaþings vestra hefur verið upplýst um samtal sveitarstjórnar, þingmanna og ráðherra menntamála um ósk sveitarfélagsins um aðkomu að viðhaldi. Leikflokkurinn leggur mikla áherslu á að þingmenn og ráðherra mennta- og menningarmála beiti sér fyrir því að fjármagn komi til viðhalds og uppbyggingar félagsheimilisins á Hvammstanga sem allra fyrst svo að sú öfluga menningarstarfsemi sem á sér stað í sveitarfélaginu hafi áfram samastað fyrir starfsemi sína og viðburðahald.

Stjórn Leikflokks Húnaþings vestra
Arnar Hrólfsson
Hörður Gylfason
Ingibjörg Jónsdóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Þorleifur Karl Eggertsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir