Blái Tréfillinn er kominn í sölu á Olís, N1 og Lyfju
Ef þú greinist með krabbamein í blöðruhálskirtli gengur þú aldrei einn. Krabbameinsfélagið Framför, félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda var stofnað þann 12. febrúar 2007. Tilgangur félagsins er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli og maka þeirra og aðstandendur.
Blái Tréfillinn er liður í fjáröflun fyrir Krabbameinsfélagið Framför starfar á landsvísu sem sjálfstætt stuðnings- og áhugamannafélag og er aðildarfélag að Krabbameinsfélagi Íslands og í samstarfi við Ljósið endurhæfingarmiðstöð (einn stjórnarmaður kemur frá þeim).
Megin verkefni félagsins eru:
- Að ljá körlum með krabbamein í blöðruhálskirtli rödd í almennri umræðu og tala þeirra máli við yfirvöld.
- Að gefa út fræðsluefni um krabbamein í blöðruhálskirtli og fylgikvilla þess, bæði fyrir sjúklingana og fyrir aðstandendur.
- Starfrækja batasamfélag til að skapa betri lífsgæði hjá körlum sem greinast með krabbamein í blöðruhálskirtli og þeirra aðstandendum.
- Halda uppi félagsstarfi og fræðslu um krabbamein í blöðruhálskirtli, við greiningu, í virku eftirliti, í meðferðum og eftir meðferðir.
- Stuðla að forvörnum og efla snemmgreiningu á krabbameini í blöðruhálskirtli.
Krabbamein í blöðruhálskirtli er algengasta krabbamein karla og er um fjórðungur allra meina sem greinast hjá körlum á Íslandi. Það er frumskilyrði að meinið greinist á frumstigi og því hvetur Feykir alla herramenn sem eru að nálgast miðjan aldur að fara í skoðun og sýnatöku. Bara að taka upp símann og panta tíma hjá lækni. /hmj
