Lulla fer í leikhús..

MYND.TROLLI.IS
MYND.TROLLI.IS

Síðastliðið föstudagskvöld brá ég mér í leikhús og sá uppfærslu Leikfélags Fjallabyggðar á farsanum Beint í æð eftir konung farsanna Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Gestir streymdu inn í salinn og greina mátti tilhlökkun gesta og á móti manni tók stílhrein og flott leikmynd. Eina sem mér fannst mögulega vanta upp á var að hafa smá tónlist í salnum áður en sýningin hófst.

Jón Borgar, yfirlæknir taugadeildar, er leikinn af Óðinni Löve, er í burðar- hlutverki, byrjar sýninguna með góðum krafti og skilar sínu hlutverki afar vel út alla sýninguna. Með hlutverk Grettis, skurðlæknis á Landa- koti, fer Fannar Þór Sveinsson og er hann mjög flottur og skemmtilegur í sínu hlutverki. Það sem er magnað er að þetta er frumraun Fannars á sviði og vonandi munum við sjá meira af honum á sviði. Þeir tveir eru einnig mjög fyndnir í senu þegar þeir bregða sér báðir í hlutverk Jórunnar yfirdeildar- hjúkrunarfræðings til að reyna að bjarga því flækjustigi sem upp kemur. Súsanna er leikin af Hörpu Hlín Jónsdóttir og er hún örugg og flott í sínu hlutverki sem eiginkona Jón Borgars. Friðrik Birgisson skilar hlutverki sínu sem Páll Óskar, yfirlæknir á Landakoti, einnig vel, skemmtileg blanda, á að vera stressaður yfirmaður og slakur þegar hann fær eitthvað gott í glas. Þegar Díana, fyrrverandi skurðhjúkrunar- fræðingur, sem leikin er af Hönnu Bryndísi Þórisdóttir, mætir á Landakot eftir langa fjarveru með fréttir fyrir Jón Borgar fer af stað hröð og skemmtileg atburðarrás sem leysist ekki fyrr en í lokin og nú verður þú einfaldlega að mæta í leikhús til að sjá. Hanna Bryndís skilar sínu hlutverki vel, skemmtileg blanda af fyrrverandi starfsmanni og áhyggjufullri móður Frímanns. Frímann, sonur Díönu, er leikinn af Víkingi Ólfjörð Daníelssyni, stendur sig mjög vel og er afar skemmtilegur, kraftmikill og sannfærandi í sínu hlutverki en þetta er í fyrsta sinn sem hann leikur í farsa. Sama má segja um annan nýliða á sviði en Mannfreð, elliær og sjúklingur, leikinn af Kristni Magnússyni, er frábær í sínu hlutverki og heldur vonandi áfram að leika líka. Gríma Briem, læknir á Landa- koti, leikin af Maríu Bjarney Leifsdóttur, er skemmtileg og mikil leikgleði hjá henni við það að reyna drífa gerð myndbands áfram fyrir vinnu þorrablótsgleði. Jórunn, yfirdeildarhjúk- runarfræðingur, leikin af Sigríði Guðmundsdóttur, er mjög flott í sínu hlutverki og sannfærandi í leik eftir að hafa fengið haldol, spurning hvort eitthvað var í sprautunni? Bera, rannsóknarlögreglu- kona, leikin af Margréti Kristinsdóttur, heldur vel utan um sitt hlutverk við að reyna að skilja alla þessa flækju og greiða úr henni. Gróa, móðir Grettis, leikin af Þuríði Sigmundsdóttir, er mjög skemmtileg í hlutverki heyrnaskertrar móður.

Heilt yfir er sýningin frábær skemmtun. Valgeir leikstjóri hefur unnið góða vinnu með góðu kasti í hlutverk og náð góðri vinnu með hópnum. Sýningin tikkar í þau box sem góður farsi þarf að hafa, hröð, tæmingar upp á 10,5, sýningin er skemmtileg og það fyndin að nokkrar setningar týndust í hlátri í sal. Góður hópur bakvið tjöldin hefur unnið sína vinnu vel þar sem leikmynd, leikmunir, bún- ingar, smink og tæknimál eru í góðum málum. Hvet alla til að drífa sig í að panta miða og lengja lífið með hlátri.

Takk fyrir góða skemmtun

Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir formaður LS

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir