Réttur til sambúðar á hjúkrunarheimilum og búsetu á landsbyggðinni

Eyjólfur Ármannsson.MYND AÐSEND
Eyjólfur Ármannsson.MYND AÐSEND

„Það er eins og við séum slitin í sundur, það er ekki hægt að segja annað, og einmitt þegar kannski væri mest þörfin fyrir stuðning.“ Þetta sagði viðmælandi í Kastljóssviðtali árið 2013. Eiginkona hans þurfti að flytjast á hjúkrunarheimili og hann vildi fara með henni en fékk ekki samþykkt færni- og heilsumat. Maðurinn heimsótti konuna sína daglega í þrjú ár.

Öll viljum við fá að eldast með reisn. Við viljum njóta efri áranna í faðmi fjölskyldu okkar. Því miður er fjölskyldusameining ekki tryggð í lögum um málefni aldraðra. Réttur til dvalar á hjúkrunarheimili er bundinn því skilyrði að viðkomandi hafi undirgengist færni- og heilsumat sem sýni fram á þörf hans fyrir hjúkrunar- eða dvalarrými. Það gerist reglulega þegar einstaklingar þurfa heilsu sinnar vegna að leggjast inn á hjúkrunarheimili að þeir verða viðskila við maka sinn. Flokkur fólksins hefur lagt fram frumvarp sem boðar breytingar á lögum sem tryggja réttinn til sambúðar í dvalar- og hjúkrunarrýmum. Réttur til sambúðar, eðli málsins samkvæmt, nær ekki aðeins til dvalar á sömu stofnun, heldur veitir maka rétt til dvalar í sama rými. Mikilvægt er að staðið verði vörð um minni hjúkrunarheimili á landsbyggðinni og eldri borgarar geti dvalið með maka sínum á hjúkrunarheimili í sinni heimabyggð en þurfi ekki að flytjast hreppaflutningum.

Viðvarandi skortur á hjúkrunarheimilum, alls staðar á landinu, sem og rekstravandi hjúkrunarheimila gerir það að verkum að erfitt er að fá þingmeirihluta fyrir fyrrnefndu frumvarpi Flokks fólksins. Sjö hundruð eldri borgarar eru á biðlista eftir hjúkrunarrýmum og ríkisstjórnin virðist ekki ætla að gera mikið til þess að taka á þessari krísu. Uppbygging hjúkrunarheimila verður að taka tillit til rétts til sambúðar, mismunandi búsetu og fjölbreytileika eldri borgara.

Með núverandi vanrækslustefnu stjórnvalda er erfitt að tryggja hjónum rétt til sambúðar á hjúkrunarheimilum. Flokkur fólksins hefur lengi kallað eftir þjóðarátaki í uppbyggingu á hjúkrunarheimilum og við teljum það eðlilegt ef tillaga okkar um breytingu á lögum um málefni aldraðra verði hlutur af því átaki. Tryggja þarf öldruðum rétt til sambúðar í ellinni, en ekki viðskilnað!

 

Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir