Skagfirsk menning og fræði í öndvegi

Þau ánægjulegu tímamót urðu í tengslum við setningu atvinnulífssýningar fyrir um hálfum mánuði síðan að mennta- og menningarmálaráðherra og formaður byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar undirrituðu viljayfirlýsingu um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki.

Í viljayfirlýsingunni felst að miðað er við að viðbygging og endurbætur á Safnahúsi Skagfirðinga rúmi bókasafn, skjalasafn og aðstöðu fyrir fræðastarfsemi, auk listasafns, leikhússaðstöðu og langþráðs varðveislurýmis fyrir fyrrgreind söfn, auk Byggðasafns Skagfirðinga. Er gert ráð fyrir að menningarhúsið geti verið tilbúið árið 2022 – eða eftir 4 ár.

Með þessum áfanga sér loks til lands með fullnustu samkomulags um uppbyggingu menningarhúsa í Skagafirði sem undirritað var fyrir 13 árum síðan. Þar var annars vegar kveðið á um endurbætur á félagsheimilinu Miðgarði, þar sem áhersla yrði lögð á tónlistarflutning, stærri hátíðir og ráðstefnuhald og var endurbætt hús, Menningarhúsið Miðgarður, formlega vígt við upphaf Sæluviku Skagfirðinga í apríl 2009. Hins vegar var gerð tillaga um að byggt yrði við núverandi Safnahús Skagfirðinga á Sauðárkróki og að þar yrði menningarmiðstöð með áherslu á fræðastörf og sýningar – hús sem nú er loks í sjónmáli. Mun það hús sinna öðrum þáttum menningar en Menningarhúsið Miðgarður gerir í dag og styðja bæði hús þannig við öfluga menningarstarfsemi í firðinum, hvort með sínum hætti. Ganga Skagfirðingar þannig í þessum efnum ekki ólíkan veg og Ísfirðingar sem vörðu sínu framlagi til menningarhúss í endurbætur þriggja húsa, hvert með sína sérhæfingu, og íbúar Fljótsdalshéraðs sem verja því til endurbóta á tveimur húsum með ólíka starfsemi.

Öflugt fræðasamfélag

Í hinu nýja menningarhúsi er gert ráð fyrir að verði aðstaða fyrir náið sambýli og samstarf á milli starfsmanna og sérfræðinga Héraðsskjalasafns Skagfirðinga, Byggðasafns Skagfirðinga, fræðimenn Sögufélags Skagfirðinga og starfsemi Héraðsbókasafns Skagfirðinga og Listasafns Skagfirðinga. Skagfirðingar búa yfir yfirgripsmiklum menningararfi og heimildum sem búið er að vinna mjög öflugt starf í kringum. Má þar sem dæmi nefna merkilegt starf sérfræðinga fornleifadeildar Byggðasafns Skagfirðinga, ritara Byggðasögu Skagafjarðar, starfsmanna Héraðsskjalasafns og þeirra starfsmanna sem nú vinna að verkefninu um Verndarsvæði í byggð á Sauðárkróki og Hofsósi. Ógrynni tækifæra bíða með möguleikum á enn nánara samstarfi og aukinni samvinnu þeirra frábæru sérfræðinga sem starfa við söfnin. Er þá ónefndur sá gríðarlega mikilvægi áfangi sem felst í góðu aðgengi að fullbúnum og fullgildum varðveislurýmum fyrir skjöl og muni safnanna, rýmum sem standast munu ströngustu kröfur sem gerðar eru til slíkra húsakynna.

Sýningar og sviðslistir

Í nýju menningarhúsi er enn fremur gert ráð fyrir sal sem hentar vel til leiksýninga og tilheyrandi aðstöðu, auk fjölnota salarkynna til sýningarhalds á myndlist, ljósmyndum, skúlptúrum o.s.frv. Standa vonir til að með þessum vettvangi verði unnt að veita íbúum Skagafjarðar aukið aðgengi að margbreytilegum verkum og sýningum, með það að markmiði að auka menningarlæsi og vitund um gildi fjölbreyttrar listar.

Uppbygging á safnsvæði Byggðasafns Skagfirðinga í Glaumbæ

Á stefnuskrá okkar Framsóknarmanna fyrir komandi kjörtímabil er að framtíðarskipulagi safnsvæðisins í Glaumbæ verði lokið í samvinnu og samráði við helstu hagaðila, og að í framhaldinu hefjist framkvæmdir þar við nýja aðkomu að safninu og ný bílastæði, auk nýrrar og glæsilegrar þjónustumiðstöðvar fyrir Byggðasafn Skagfirðinga. Safnhúsin í Glaumbæ eru í dag vinsælasti áfangastaður ferðamanna sem sækja Skagafjörð heim og ljóst að mikillar uppbyggingar þarf við til að taka á móti miklum gestafjölda og ekki síður til að auka möguleika til varðveislu, fræðslu og miðlunar á menningararfi Skagafjarðar.

Fjölbreyttar sýningar í gamla bænum á Sauðárkróki

Við Aðalgötu á Sauðárkróki er mikil uppbygging framundan við fjölbreytt sýningarhald. Í húsinu við Aðalgötu 24, sem Sveitarfélagið Skagafjörður eignaðist nýverið, er nú þegar starfandi metnaðarfull og vel heppnuð sýning þar sem gestir geta kynnt sér líf og hátta­lag hins litríka og fallega fugls lundans. Er þar m.a. hægt með hagnýtingu tækninnar að fá 360 gráðu sýn á fugla­björg­in og nátt­úr­una í Drangey og víðar. Fyrirhugað er að færa í sömu húsakynni sýningu sem kölluð er Gömlu verkstæðin og hefur verið í Minjahúsinu á Sauðárkróki. Þar má kynna sér hluta þeirrar sögu um hvernig iðnaðarmenn á Sauðárkróki, sem voru fjölmargir á 20. öldinni, bjuggu um sig á mörkum tíma þar sem verkstæðin voru vélvædd og áður en verksmiðjur tóku við.

Handan götunnar, við Aðalgötu 21, er fyrirhugað að opni síðar á árinu sýning sem tileinkuð er atburðum á Sturlungaöld og einkum og sér í lagi Örlygsstaðabardaga, sem var háður 1238 í Skagafirði og er fjölmennasta orrusta sem háð hefur verið á Íslandi. Sérstaða sýningarinnar mun ekki síst liggja í nýjustu tækni sýndarveruleikaupplifunar (Virtual Reality) og gagnvirknimöguleikum hennar en sýningin verður stærsta sýndarveruleikasýning sem opnuð hefur verið á Norðurlöndunum. Mun sýningin ekki aðeins laða að þúsundir nýrra ferðamanna til Skagafjarðar, skapa 12-14 bein störf, auk fleiri óbeinna starfa, heldur mun hún einnig skila hreinum fjárhagslegum ávinningi sem nemur tæpum 200 milljónum króna yfir 30 ára tímabil.

Áfram verða allar og jafnvel enn betri forsendur fyrir öflugri fræðastarfsemi í Skagafirði og mikil uppbygging á fjölbreyttum sviðum menningar og miðlunar framundan.

Frambjóðendur Framsóknarflokksins

Stefán Vagn Stefánsson
Ingibjörg Huld Þórðardóttir
Laufey Kristín Skúladóttir
Axel Kárason
Einar E. Einarsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir